Beint í efni

Lang­var­andi kyng­ing­ar­erf­ið­leik­ar

Ef þú átt í erfiðleikum með að kyngja (með eða án brjóstsviða) ættir þú að láta lækni skoða þig.

Mjög algengt er að fólk finni fyrir kyngingarerfiðleikum í tengslum við hálsbólgu. Ef slík einkenni standa lengi yfir (meira en mánuð) eða fara versnandi ætti að hafa samband við lækni.

Einnig ætti að leita til læknis ef manni finnst eins og maturinn sitji fastur á leið sinni í magann.

Ástæður kyngingarörðugleika geta verið ýmsar, t.d. sjúkdómar í skjaldkirtli, en örðugleikarnir geta einnig verið merki um krabbamein í vélinda, maga, hálsi eða skjaldkirtli.

Kyngingarörðugleikar í tengslum við krabbamein geta átt sér þá orsök að æxli vex inn í og þrengir að leið matarins. Slík æxli geta einnig valdið uppköstum. 

Langvarandi kyngingarörðugleikar geta stafað af hálsbólgu en orsökin getur einnig verið krabbamein. Þess vegna er mikilvægt að þú leitir til læknis.