Breytingar á hægðum eða þvaglátum
Bregðast ætti við langvarandi breytingum á hægðum eða þvaglátum, t.d. langvarandi niðurgangi eða hægðatregðu, blóði í hægðum eða erfiðleikum við að pissa.
Hægðir
Niðurgang, hægðatregðu og magakveisu sem ganga yfir á stuttum tíma kannast flestir við að takast á við öðru hverju. Ef þú finnur hins vegar fyrir öðruvísi óþægindum en þú hefur fundið áður frá meltingarveginum og/eða breytingum á hægðum sem vara lengur en tvær vikur ættir þú að leita til læknis.
Þar sem margs konar magakvillar og breytingar á hægðum eru algengar er mikilvægt að hafa ekki áhyggjur í hvert sinn sem einhverra einkenna frá meltingarvegi verður vart. Hins vegar á að vera á varðbergi og veita því athygli ef breytingarnar eru öðruvísi en vant er eða vara lengur en tvær vikur og ætti þá að leita til læknis.
Þessu ættir þú að fylgjast með og bregðast við:
- hægðatregðu og niðurgangi á víxl lengur en í tvær vikur
- ef þér finnst eins og þú náir ekki að tæma alveg þegar þú hefur hægðir
- blóði í hægðum (hvort sem er ferskt, rautt blóð eða dökkar hægðir (mögulega litaðar af gömlu blóði)
- magaverkjum sem standa lengur en í tvær vikur
- langvarandi niðurgangi eða hægðatregðu
- þembutilfinningu, lofti í þörmum
- hægðum sem eru svipaðar blýanti að gildleika
Ýmsar orsakir geta legið að baki því að hægðamynstur breytist, m.a. veiru- og bakteríusýkingar, matareitranir og sýklalyfjanotkun. Þær geta þó einnig stafað af krabbameini og því er mikilvægt að leita til læknis ef um óvenjuleg eða langvarandi einkenni er að ræða.
