Beint í efni

Nýir fæð­ing­ar­blett­ir eða breyt­ingar á blett­um

Verði vart við breytingar á fæðingarbletti ætti að láta athuga blettinn hjá lækni.

Vertu vakandi fyrir þessu:

  • fæðingarbletti sem tekur breytingum, t.d. hvað varðar stærð, lögun eða lit
  • ef blettur er ósamhverfur, með óreglulega jaðra eða hefur fleiri en einn lit
  • ef hrúður myndast á fæðingarbletti eða sár myndast í honum
  • ef viðvarandi kláði er í fæðingarbletti eða einhvers konar breyting verður á tilfinningu í honum
  • ef nýr blettur myndast með einhverjum af ofangreindum einkennum

Gott er að venja sig á að skoða líkama sinn reglulega og horfa eftir fæðingarblettum. Þá getur maður tekið eftir því ef nýir blettir bætast við eða breytingar verða á þeim sem eru þegar til staðar. Hægt er að nota spegil til að skoða bak og hnakka eða fá aðstoð frá öðrum.