Liðsstjórinn og hlutverk hans

Fyrir hverjum hópi fer einn liðsstjóri sem hefur það hlutverk að halda utan um hópinn og vera tengiliður við fulltrúa Styrkleikanna.

Boðið verður upp á liðsstjórafund til þess að fara yfir praktísk atriði varðandi Styrkleikana áður en að viðburðinum kemur.

Helstu verkefni liðsstjóra:

  • Sameina hópinn sem skráður er í liðið þitt (facebook hópur er mjög algengt hjálpartæki). Liðsstjóri fær skilaboð þegar nýr aðili skráir sig í liðið
  • Ákveða hvernig liðið vill hafa sinn sólarhring. 
    • Viljið þið leigja tjald til þess að vera með „heimastöð“ allan sólarhringinn?
    • Viljið þið vera með uppákomur sjálf?
      T.d. selja vöfflur eða eitthvað annað frá ykkar heimasvæði?
    • Viljið þið vera með þema, kaupa eins boli, eða annan klæðnað?
      Oft byggir þetta á því sem sameinar liðið
    • Viljið þið safna áheitum fyrir hvern hring sem liðið fer?
  • Sólarhringurinn
    Tillögu að skipulagi sólarhringsins fyrir liðin má nálgast hér  "tillaga að sólarhring"
    Það er ekki gengið á meðan setning, ljósastund og slitin fara fram.
    Hver og einn gengur á sínum hraða, þetta er ekki keppni.

  • TjöldTjald-1
    Það verður hægt að panta tjald til þess að halda utan um liðið á Styrkleikunum. Liðið er þá með heimastöð þar sem það getur skipulagt leiki, spjall og eigin upplifanir fyrir sína liðsfélaga.

    Tvær stærðir af tjöldum eru í boði.
    3m*6m sem kosta 30.000 kr.Tjald-2
    3m*3m sem kosta 20.000 kr.

    Hægt er að panta tjald með því að senda póst á styrkleikarnir@krabb.is