Björn Teitsson 28. maí 2021

Vísindasjóður úthlutar 89 milljónum til 11 rannsókna

Í dag var mikil gleði í lofti í Skógarhlíð þegar Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins úthlutaði 89 milljónum króna til 11 rannsókna. Var þetta stærsta úthlutun sjóðsins til þessa. 

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins veitti í dag 11 styrki að upphæð 89 milljóna króna. Voru þar sjö styrkir til nýrra rannsókna og fjórir framhaldsstyrkir til rannsókna sem hafa áður fengið styrk. Er þetta stærsta úthlutun Vísindasjóðsins til þessa. Þess má einnig geta að á undanförnum fimm árum (2017-2021) hefur Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins veitt 58 styrki, alls 316 milljónir króna, til 37 mismunandi rannsókna.


Styrkir


Um er að ræða styrkveitingar sem teljast sem rífleg innspýting í íslenskt háskóla- og vísindasamfélag og styður við rannsóknarstarf í örum vexti ekki síst í heilbrigðisgeiranum. Þar erum við Íslendingar meðal fremstu þjóða á heimsvísu og eru þau verkefni sem hljóta styrki að þessu sinni líkleg til að hafa marktæk áhrif á þróun forvarna, greiningar og meðferðar krabbameina um allan heim.

Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, lagði á það áherslu í ávarpi sínu að sjóðurinn myndi halda áfram að vaxa og dafna og þar með vera íslensku vísindafólki innan handar. Styrkirnir skipta verulegu máli, ekki síst við upphaf stórra rannsóknarverkefna sem eiga síðar möguleika á að stækka enn frekar. Vísindasjóðurinn var stofnaður árið 2015 en hryggjarstykki sjóðsins var stofnframlag Krabbameinsfélagsins auk tveggja erfðagjafa; úr Minningarsjóði Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnson annars vegar og Minningarsjóði Kristínar Björnsdóttur hins vegar. Síðan hefur sjóðurinn notið stuðnings sjálfsaflafés Krabbameinsfélagsins en þar eru Velunnarar Krabbameinsfélagsins ómissandi. Fá þeir sérstakar þakkir fyrir að styðja við rannsóknir sem koma til með að bjarga mannslífum.

Tilgangur sjóðsins er að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum, meðal annars með því að styrkja með fjárframlögum rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.

Styrkþegarnir í ár eru:

· Berglind Ósk Einarsdóttir hlýtur 6.150.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk MITF í hindrun ónæmissvars sortuæxla.

· Bylgja Hilmarsdóttir hlýtur 3.200.000 kr. styrk fyrir verkefnið Þróun örvefjalíkana úr briskrabbameini og notkun þeirra sem módel fyrir notkun PARP hindra í meðferð.

· Erna Magnúsdóttir hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið BLIMP1 miðluð stjórnun á frumuhring í Waldenströmsæxlum.

· Georgios Kararigas hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Áhrif nýju curcúmín afleiðunnar C66 á hjartavöðvakvilla af völdum doxórúbicíns.

· Guðrún Valdimarsdóttir hlýtur 8.600.000 kr. styrk fyrir verkefnið Æxlingar úr brjóstakrabbameinssjúklingum meðhöndlaðir með æðaþelssértækum sameindalyfjum - Samanburður á frumæxlum og meinvörpum í ólíkum undirgerðum brjóstakrabbameins.

· Gunnhildur Ásta Traustadóttir hlýtur 4.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk peroxidasin í eðlilegum og illkynja brjóstkirtli.

· Laufey Tryggvadóttir hlýtur 9.232.081 kr. styrk fyrir verkefnið Brjóstakrabbamein á Íslandi árin 1988 – 2020: Samanburður á gæðum skimunar og meinafræðilegum forspárþáttum, milli kvenna á aldrinum 40 – 49 ára og 50 – 69 ára.

· Margrét Helga Ögmundsdóttir hlýtur 8.500.000 kr. styrk fyrir verkefnið Sjálfsát í krabbameinum: Greining á spendýrasértæku hlutverki ATG7.

· Pétur Orri Heiðarsson hlýtur 9.992.364 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk óreiðusvæða í starfsemi MITF umritunarþáttarins.

· Sigurður Yngvi Kristinsson hlýtur 9.221.532 kr. styrk fyrir verkefnið Klínískt notagildi frumuflæðisjárrannsókna í forstigum mergæxlis og áhrif nærumhverfis mergæxlisfrumna á sjúkdómsframvindu.

· Stefán Sigurðsson hlýtur 10.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Hlutverk MITF í að viðhalda stöðugleika erfðaefnisins.


Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Takk sjálfboðaliðar!

Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða og Krabbameinsfélagið vill nýta tækifærið og þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum í þágu félagsins. Í tilefni dagsins fengum við nokkra sjálfboðaliða til að segja okkur frá því hvers vegna þau velja að leggja baráttunni gegn krabbameinum lið.

Lesa meira

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

2. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?