Guðmundur Pálsson 23. feb. 2022

Vísindasjóður óskar eftir umsóknum

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti þriðjudaginn 22. mars.

Markmið Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins er að efla rannsóknir á orsökum krabba­meina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga. Fjölbreytt rannsóknarverkefni eru styrkt af Vísindasjóðnum. Sérstaklega er hvatt til umsókna til klínískra rannsókna og rannsókna sem tengjast börnum og unglingum.

Stofnfé sjóðsins eru styrkir og gjafir frá almenningi og fyrirtækjum um allt land. Við þökkum öllum velunnurum félagsins. Með þeirra stuðningi varð stofnun sjóðsins að veruleika.

Sjóðurinn hefur veitt 58 styrki, samtals að upphæð 316 milljónum króna.

  • Umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar er að finna á www.krabb.is/visindasjodur/
  • Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti þriðjudaginn 22. mars
  • Umsóknir skal senda rafrænt á visindasjodur@krabb.is
  • Hámarksupphæð styrks er 10 milljónir króna
  • Styrkur vegna sama verkefnis er veittur að hámarki í þrjú ár
  • Sækja auglýsingu

KRA_DBL_4x25_Styrkir-Visindasjodur_2022_fyrir_vef-copy

 


Fleiri nýjar fréttir

9. jún. 2023 : Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig

Þegar einhver í kringum okkur greinist með krabbamein er eðlilegt að upplifa óöryggi. þótt flestir vilji leggja sitt af mörkum til að vera til staðar getur óttinn við að segja ekki réttu hlutina eða að vita ekki hvað á að segja leitt til þess að jafnvel verði minna samband við viðkomandi en áður.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?