Ása Sigríður Þórisdóttir 14. nóv. 2022

Vinnustofan VISS á Flúðum styrkti Krabbameinsfélagið

  • Á myndinni frá hægri eru þau Vilhjálmur Guðmundsson, Edvin Kristinsson, Atli Sigmundsson, Hlíf Sigurðardóttir, Gunnar Valur Matthíasson, Else Nielsen og Unnur Þórsdóttir sem sem sá um að afhenda styrk
    Á myndinni frá hægri eru þau Vilhjálmur Guðmundsson, Edvin Kristinsson, Atli Sigmundsson, Hlíf Sigurðardóttir, Gunnar Valur Matthíasson, Else Nielsen og Unnur Þórsdóttir sem sem sá um að afhenda styrkinn. Vinstra megin eru það svo þau Ása Sigríður Þórisdóttir frá Krabbameinsfélaginu og Stefán Magnússon frá Krafti.

Vinnustofan VISS á Flúðum langaði að leggja sitt að mörkum til að styðja við bleikan október og máluðu fallega steina sem þau seldu á 1000 krónur stykkið og allur ágóðinn rann til Krabbameinsfélagsins. Steinarnir voru seldir á vinnustofu VISS á Flúðum og á bleika deginum fóru þau svo um bæinn og seldu stofnunum og fyrirtækjum sem eru staðsett á Flúðum steina.

Það er óhætt að segja að salan á þessum fallegu steinum hafi gengið afar vel. Því glæsilegur hópur kom í bæjarferð og kom við hér hjá okkur í Skógarhlíðinni á dögunum og afhenti Krabbameinsfélaginu 106.000 krónur sem þau söfnuðum með sölu á bleiku steinunum. 

Krabbameinsfélagið þakkar þeim kærlega hlýhug og stuðninginn sem félaginu er sýndur.

Bleikir-steinar-VISS-vinnustofa-Fludum-2022

 


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?