Ása Sigríður Þórisdóttir 27. maí 2022

Verkís styrkir Krabbameinsfélagið

Í tilefni 90 ára afmælis verkfræðistofunnar Verkís veitti stofan Krabbameinsfélagi Íslands – Styrkleikunum, veglegan styrk sem Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís, Helgi Þór Helgason, formaður stjórnar Verkís og Susanne Freuler, varaformaður stjórnar Verkís, afhentu félaginu.

Verkís tók þátt í Styrkleikum Krabbameinsfélagsins í vor sem fóru fram á Selfossi. Liðið gekk 1.240 hringi, þann sólarhring sem viðburðinum stóð, til stuðnings einstaklingum sem greinst hafa með krabbamein og aðstandenda þeirra.

Krabbameinsfélagið þakkar Verkís kærlega fyrir styrkinn sem mun koma að góðum notum við að styðja við einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Verkís veitti jafnframt styrki til Ljóssins og Rauða krossins.

IMG_1067

Frá vinstri á ljósmynd: Helgi Þór Helgason, Susanne Freuler, Eva Íris Eyjólfsdóttir og Halla Þorvaldsdóttir fyrir hönd Styrkleikanna/Krabbameinsfélagsins, Erna Magnúsdóttir fyrir hönd Ljóssins, Brynhildur Bolladóttir fyrir hönd Rauða krossins og Egill Viðarsson. 

 


Fleiri nýjar fréttir

9. jún. 2023 : Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig

Þegar einhver í kringum okkur greinist með krabbamein er eðlilegt að upplifa óöryggi. þótt flestir vilji leggja sitt af mörkum til að vera til staðar getur óttinn við að segja ekki réttu hlutina eða að vita ekki hvað á að segja leitt til þess að jafnvel verði minna samband við viðkomandi en áður.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?