Ása Sigríður Þórisdóttir 21. feb. 2020

Umhugað um heilsu og heilbrigði starfsfólks síns

HS Veitur hvetja starfsfólk sitt til þátttöku í Karlahlaupi Krabbameinsfélagsins og greiða þátttökugjald starfsmanna.

HS Veitur ætla að styðja við heilsu starfsmanna sinna og starfsemi Krabbameinsfélagsins í leiðinni með því að hvetja til þátttöku og greiða þátttökugjald fyrir alla starfsmenn sem skrá sig til leiks í Karlahlaup Krabbameinsfélagsins sem fer fram 1. mars.

„HS Veitur er fyrirtæki sem er umhugað um heilsu og heilbrigði starfsfólks síns. Okkur er því bæði ljúft og skylt að styðja við verðmæt samfélagsleg verkefni og hvetjum eindregið til þátttöku í hlaupinu til styrktar góðs málefnis segir Ragnheiður G. Eyjólfsdóttir, mannauðstjóri HS veitna”.

Við þökkum HS Veitum kærlega fyrir stuðninginn og skorum á fleiri fyrirtæki að gera hið sama – allir græða á bættri heilsu!


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?