Guðmundur Pálsson 23. mar. 2020

Tímabundið hlé á skimunum hjá Leitarstöð

Í samræmi við fyrirmæli Landlæknis verður gert tímabundið hlé á skimunum Leitarstöðvarinnar frá og með þriðjudeginum 24. mars.

Tímabundið hlé verður gert á brjósta- og leghálsskimunum Leitarstöðvarinnar frá og með þriðjudeginum 24. mars í samræmi við fyrirmæli Landlæknis.

Hléið gildir til 31. maí næstkomandi. Haft verður samband við þær konur sem eiga bókaða tíma og þær afboðaðar. Ekki verður tekið við nýjum tímabókunum fyrr en ljóst er hvenær hefja má starfsemina að nýju

Konum sem finna fyrir einkennum frá brjóstum eða kvenlíffærum er ráðlagt að bóka tíma í skoðun hjá lækni á heilsugæslu eða hjá kvensjúkdómalækni.

Áfram verða framkvæmdar leghálsspeglanir upp að ákveðnu marki og sérskoðanir á brjóstum á vegum Landspítala halda áfram þar til annað kemur í ljós.


Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Takk sjálfboðaliðar!

Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða og Krabbameinsfélagið vill nýta tækifærið og þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum í þágu félagsins. Í tilefni dagsins fengum við nokkra sjálfboðaliða til að segja okkur frá því hvers vegna þau velja að leggja baráttunni gegn krabbameinum lið.

Lesa meira

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?