Guðmundur Pálsson 25. ágú. 2019

Takk þið sem hlupuð til góðs í Reykja­víkur­mara­þoni Íslands­banka 2019

Áheitasöfnun hlaupsins á hlaupastyrkur.is er enn í fullum gangi og verður opin til miðnættis á mánudaginn 26.ágúst. Þegar er búið að slá áheitametið sem sett var í fyrra og eru áheitin komin yfir 160 milljónir.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í 36. sinn í frábæru hlaupaveðri á laugardaginn. Til þátttöku voru skráðir 14.667 hlauparar á öllum aldri. Þátttökumet var sett í 10 km hlaupinu þar sem 7203 tóku þátt og 3 km skemmtiskokki þar sem 2436 voru skráðir til þátttöku.

Um leið og við þökkum þeim fjölmörgu hlaupurum sem hlupu fyrir félagið óskum við öllum þátttakendum til hamingju með að taka þátt því eins og flestir vita er hreyfing af öllu tagi góð fyrir heilsuna.

Líklega eru færri sem vita að regluleg hreyfing í 30 mínútur á dag getur minnkað líkur á ýmsum tegundum krabbameina svo sem í ristli og endaþarmi, brjóstum og legbol. Rannsóknir sýna að einstaklingar sem hreyfa sig reglulega greinast sjaldnar með krabbamein en þeir sem hreyfa sig lítið sem ekkert.

Somi1

Starfsfólk Krabbameinsfélagsins í stuði á hvatningarstöð félagsins við Ægissíðu


Fleiri nýjar fréttir

9. jún. 2023 : Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig

Þegar einhver í kringum okkur greinist með krabbamein er eðlilegt að upplifa óöryggi. þótt flestir vilji leggja sitt af mörkum til að vera til staðar getur óttinn við að segja ekki réttu hlutina eða að vita ekki hvað á að segja leitt til þess að jafnvel verði minna samband við viðkomandi en áður.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?