Sóley Jónsdóttir 15. jún. 2017

Sumar­happdrætti Krabbameins­félagsins: dregið út 17. júní

Átt þú miða?

Hægt er að greiða heimsenda miða í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins til og með 17. júní í heimabanka eða netbanka. 

Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8 en þar verður opið á 17. júní  frá kl. 10:00 til kl. 16:00. 

Þeir sem vilja borga miða með greiðslukorti geta hringt í síma 540 1900.

Einnig er hægt að kaupa miða í happdrættinu í netverslun Krabbameinsfélagsins hér.  

Sendingarkostnaður er innifalinn. 

Dregið verður 17. júní. Vinningaskrá verður birt á vefsíðu Krabbameinsfélagsins þann 19. júní og í dagblöðum þriðjudaginn 20. júní.

Keyptu miða í netverslun Krabbameinsfélagsins hér. 


Fleiri nýjar fréttir

20. sep. 2023 : Beint streymi: Málþing í tilefni alþjóða­dags krabba­meins­rannsókna

„Varðar mig eitthvað um krabba­meins­rann­sóknir? Já, því vísindin eru leiðin fram á við”. Þannig hljómar titill málþings sem Krabba­meins­félagið býður til í tilefni alþjóða­dags krabba­meins­rann­sókna fimmtu­daginn 21. september kl. 16:30 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8.

Lesa meira

12. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023: Komdu að leika

Krabbameinsfélagið leitar að fólki til að hjálpa okkur að búa til auglýsinguna fyrir Bleiku Slaufuna 2023. Auglýsingin er með stærra sniði í ár og þurfum við því aðstoð sem allra flestra.

Lesa meira

7. sep. 2023 : Tryggðu þér miða

Nú styttist í Bleiku slaufuna árlegt fjáröflunar- og árvekniátak Krabbameinsfélagsins, tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Tryggðu þér miða á opnunarviðburðinn sem verður í Þjóðleikhúsinu 28. september.

Lesa meira

5. sep. 2023 : „Ef ég held röddinni þá læt ég reyna á þetta“

Ljóðskáldið og rithöfundurinn Anton Helgi Jónsson stóð fyrir einstökum viðburði á Menningarnótt og safnaði um leið áheitum til styrktar Krabbameinsfélaginu. Viðburðurinn fékk heitið Ljóðamaraþon og gekk út á ljóðalestur undir berum himni í jafn langan tíma og sem nemur heimsmeti í maraþonhlaupi, eða í rúma tvo klukkutíma. Anton Helgi segir hér frá krabbameininu sem uppgötvaðist fyrir tilviljun, kirkjuskáldum og kráarskáldum og öðruvísi maraþonundirbúningi.

Lesa meira

5. sep. 2023 : Upplýsingafundur fyrir samstarfsaðila Bleiku slaufunnar

Vill þitt fyrirtæki vera samstarfsaðili Bleiku slaufunnar? Komdu á upplýsingafund sem haldinn verður í húsnæði Krabbameinsfélagsins 8. september nk. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?