Guðmundur Pálsson 13. jún. 2018

Sumarhappdrætti: Dregið 17. júní - átt þú miða?

Hægt er að greiða heimsenda miða í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins til og með 17. júní í heimabanka eða netbanka.

Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8 en þar verður opið á 16. júní frá kl. 10:00 til kl. 12:00 og á 17. júní  frá kl. 10:00 til kl. 16:00. Þeir sem vilja borga miða með greiðslukorti geta hringt í síma 540 1900.  

Einnig er hægt að kaupa miða í happdrættinu í netverslun Krabbameinsfélagsins hér. Sendingarkostnaður er innifalinn. 

Dregið verður 17. júní. Vinningaskrá verður birt á vefsíðu Krabbameinsfélagsins þann 18. júní og í dagblöðum þriðjudaginn 19. júní.

Sumarhappdraetti-2


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?