Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 29. jan. 2020

Stuðningsnetið

Kraftur – stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein hefur í nokkur ár starfrækt stuðningsnet þar sem ungt fólk, sem fengið hefur krabbamein og aðstandendur, hefur fengið sérstaka þjálfun til að veita öðrum í sömu stöðu ráðgjöf og stuðning. 

Í gegnum samstarf Krafts og Krabbameinsfélagsins hefur Stuðningsnetið nú verið opnað þannig að það nýtist öllum, óháð aldri eða tegund krabbameins. 

Félagsmenn fleiri aðildarfélaga hafa fengið viðeigandi þjálfun og eru hluti af Stuðningsnetinu. 

Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur, er verkefnisstjóri stuðningsnetsins. Nánari upplýsingar fást í síma 800 4040 eða með því að senda póst á radgjof@krabb.is.

Kynningarátakið Ég skil þig

Verið er að vinna kynningarmyndbönd um Stuðningsnetið þar sem stuðningsfulltrúar lýsa reynslu sinni af hlutverkinu. Flestir segjast vilja gefa til baka og að reynsla þeirra skipti miklu máli, því þeir sem hafi gengið í gegnum slíkt ferli skilji aðstæðurnar betur.

Greinin birtist í Blaði Krabbameinsfélagsins 2020.


Fleiri nýjar fréttir

29. sep. 2023 : Slökkti fyrst eld og keypti svo Bleiku slaufuna

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að sala Bleiku slaufunnar hófst á miðnætti í dag, 29. september. Nágranni Krabbameinsfélagsins, Bergrún Ingimarsdóttir, varð fyrst til að tryggja sér slaufu ársins. Það mátti þó litlu muna að það tækist ekki vegna elds sem hún þurfti að ráða niðurlögum að.

Lesa meira

27. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023

Gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir (by lovisa) og Unnur Eir Björnsdóttir (EIR) eru hönnunarteymið á bak við Bleiku slaufuna í ár. Það er óhætt að segja að þeim hafi tekist ætlunarverk sitt, en slaufan í ár er sú bleikasta sem við höfum séð lengi

Lesa meira

26. sep. 2023 : "Mikilvægt að segja líka frá því sem gengur vel"

Styttri legutími, skjótari bati, lægri dánartíðni og betri lifun. Ný aðferðafræði við skurðaðgerðir við lungnakrabbameini var tekin upp nærri því á einni nóttu og hefur gefið reglulega góða raun í baráttunni gegn lungnakrabbameini. Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og Viktor Ásbjörnsson læknanemi segja hér frá byltingarkenndri þróun í skurðaðgerðum við lungnakrabbameini og mikilvægi rannsókna og stuðnings við þær fyrir framþróun í málaflokkinum. 

Lesa meira

26. sep. 2023 : Takk fyrir komuna

Nýafstaðið málþing í tilefni af alþjóðadegi krabbameinsrannsókna vakti greinilega forvitni margra, því húsfyllir var í Skógarhlíðinni auk þess sem fjölmargir fylgdust með í streymi. Krabbameinsfélagið vill koma á framfæri kærum þökkum til allra sem tóku þátt.

Lesa meira
Elísa Dögg Björnsdóttir frá TVG-Zimsen, Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður markaðsmála og  fjáröflunar hjá Krabbameinsfélaginu og Magnús Ingi Guðmundsson frá IDÉ House of brands, sem sér um framlei

25. sep. 2023 : Nú er það bleikt!

Að baki átaki eins og Bleiku slaufunni búa fjölmörg handtök og undirbúningur hefst mörgum mánuðum áður en afurðin berst landsmönnum í hendur og hjörtu. Það er því alltaf stór stund þegar við fáum sjálfa slaufuna í hús og niðurtalningin fyrir upphaf átaksins hefst formlega.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?