Ása Sigríður Þórisdóttir 4. nóv. 2022

Starfsfólk Símans styrkir Krabbameinsfélagið

„Krabbamein snertir okkur öll, við leggjum okkar af mörkum til minningar um vini okkar og samstarfsfólk sem lotið hefur í lægra haldi í baráttunni við krabbamein í gegnum árin og hugsum fallega til þeirra með því að styðja Krabbameinsfélagið„ segir Anna María.

Hjá Símanum er hjarta fyrirtækisins Kaffigarðurinn, kaffihús þar sem starfsfólk hittist með form- og óformlegum hætti og fær sér kaffi og kræsingar hjá Önnu Maríu Jónsdóttur, kaffibarþjóni Kaffigarðsins.

Eins og fyrri ár seldi Anna María Bleiku slaufuna í Kaffigarðinum og hvatti starfsfólk til að styðja við Krabbameinsfélagið ásamt því að minna öll sem komu í Kaffigarðinn að klæðast bleiku á Bleika deginum. Krabbameinsfélagið kom svo og flutti fræðslufyrirlestur um forvarnir.

Starfsfólk Símans svaraði kalli Önnu Maríu og seldust alls 100 Bleikar slaufur, sú síðasta á Bleika deginum sjálfum. Anna María ásamt öðru starfsfólki hvatti svo Símann til að styðja við átakið og Síminn lagði því til sömu upphæð og starfsfólk hafði keypt slaufur fyrir.

Krabbameinsfélagið þakkar starfsfólki Símans kærlega fyrir hlýhug og góðan stuðning.


Fleiri nýjar fréttir

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

25. mar. 2024 : Saga Sigurgeirs Líndal Ingólfssonar

Sigurgeir segir að fræðslan og kynningin í kringum Mottumars sé þýðingarmikil og hafi ýtt við honum þegar einkenni gerðu vart við sig og gert það að verkum að hann fór til læknis. Einkennin voru ekki ólík þvagfærasýkingu en það var einmitt svarið sem hann fékk fyrst þegar hann leitaði sér hjálpar.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?