Söfnun ábendinga um atriði í rannsókn um reynslu fólks af greiningarferli, meðferð og endurhæfingu.
Hjá Krabbameinsfélagi Íslands er nú unnið að undirbúningi rannsóknar meðal þeirra sem greinst hafa með krabbamein.
Hjá Krabbameinsfélagi Íslands er nú unnið að undirbúningi rannsóknar meðal þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Í rannsókninni verða þátttakendur spurðir út í reynslu sína af ýmsum þáttum í aðdraganda sjúkdómsgreiningar, greiningarferlinu, sjúkdómsmeðferð og endurhæfingu. Markmiðið er að finna þá þætti sem helst þarfnast úrbóta í tengslum við greiningu krabbameins, meðferð og endurhæfingu. Stefnt er að því að rannsóknin verði fastur liður í starfsemi félagsins, með það að markmiði að styrkja félagið í málsvarahlutverki sínu og vinna að úrbótum.
„Það skiptir okkur hjá Krabbameinsfélaginu miklu máli að vera í góðu sambandi við almenning og við hvetjum þá sem hafa reynslu og/eða skoðanir á því hvað megi betur fara til þess að senda okkur línu. Upplýsingar um það og hvernig við getum þjónað þeim sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra betur eru okkur afar mikilvægar bæði til að bæta okkar þjónustu og hvetja til úrbóta annars staðar. Enda er eitt af okkar hlutverkum einmitt að vinna að hagsmunamálum,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Til að auðvelda undirbúning rannsóknarinnar hefur verið ákveðið að bjóða fólki að senda inn ábendingar um þá þætti sem það telur mikilvægast að spurt sé um í rannsókninni.
Ábendingarnar eru nafnlausar og engum persónugreinanlegum upplýsingum verður safnað. Félagið áskilur sér allan rétt til að nýta ábendingarnar eins og réttast þykir.