Ása Sigríður Þórisdóttir 12. júl. 2022

Slökkviliðsstörf eru krabbameinsvaldandi

Alþjóðlega krabbameinsrannsóknarstofnunin (IARC), hefur breytt hættu­flokk­un starfs slökkviliðsmanna í staðfest krabba­meinsvald­andi varðandi krabbamein í fleiðru og krabbamein í þvagblöðru.

Vísbendingar eru um hugsanleg tengsl við önnur mein eins og krabbamein í ristli, blöðruhálskirtli, eistum, húð og non-Hodgkin eitlfrumukrabbamein.

Í yfirlýsingu frá Landssambandi slökkviliðs og sjúkrafluttningamanna um málið segir að mikilvægt sé að löggjöf skilgreini krabbamein tengd starfi slökkviliðsmanna sem atvinnusjúkdóm og tryggi réttindi þeirra sem hafa greinst eða munu greinast með starfstengd krabbamein. Nauðsynlegt sé að ráðast í greiningu og gerð aðgerðaráætlunar á breiðum grundvelli sem hefur það markmið að lágmarka líkur á því að slökkviliðsmenn verði útsettir fyrir krabbameinsvaldandi efnum. Þá þarf að rýna í starfsaðstæður og jafnvel endurhannanir á slökkviliðsstöðvum til að hægt sé að meðhöndla menguð tæki og búnað með öruggum hætti, aðstaða til einstaklingsþrifa þarf að vera til staðar og rýna þarf í starfsreglur og vinnulag við slökkvistörf.

Krabbameinsfélagið tekur nú þátt í samnorrænni rannsókn þar sem tíðni krabbameina er skoðuð út frá mismunandi starfsgreinum.

 

 


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?