Ása Sigríður Þórisdóttir 10. mar. 2020

Skimunum á Húsavík, Raufarhöfn, Kópaskeri og Akureyri frestað um óákveðinn tíma vegna Covid-19

Ekki hafa komið upp smit á þessum stöðum en mikið viðbótarálag er á þessar stofnanir vegna Covid-19. Auk þess eru færri komur á stofnanirnar líklegar til að draga úr dreifingu smits ef upp kemur.

Vegna yfirvofandi Covid-19 faraldurs í samfélaginu neyðist Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík, Raufarhöfn, Kópaskeri og Akureyri að fresta öllum skimunum fyrir brjósta- og leghálskrabbameini um óákveðinn tíma. Ekki hafa komið upp smit á þessum stöðum en mikið viðbótarálag er á þessar stofnanir vegna Covid-19. Auk þess eru færri komur á stofnanirnar líklegar til að draga úr dreifingu smits ef upp kemur.

Fyrir þær konur sem hafa fengið boð í skimun er engin ástæða til að óttast smá bið þar sem skimunin er hugsuð fyrir þær sem eru án einkenna. Það er því með öllu óhætt að fresta skoðunum um einhvern tíma. Fyrir þær konur sem hafa tök á, eða eiga erindi til Reykjavíkur, er mögulegt að óska eftir tíma í skoðun á Leitarstöðinni sem staðsett í húsnæði Krabbameins­félagsins að Skógarhlíð 8, pantanir eru í síma 540 1919. Ef konur finna hjá sér einkenni frá brjóstum eða kvenlíffærum er ávallt ráðlagt að leita álits hjá lækni.


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?