Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 16. sep. 2019

Samið við Ljósið um endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Sjúkratryggingum Íslands að gera þriggja ára þjónustusamning við Ljósið um endurhæfingarþjónustu við fólk sem greinst hefur með krabbamein. 

Alls eru 220 milljónir merktar Ljósinu í fjárlagafrumvarpi næsta árs en það hefur til þessa verið rekið fyrir söfnunarfé og styrki. Á heimasíðu Heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að Ljósið sé viðurkennd heilbrigðisstofnun samkvæmt skilgreiningu laga og heyri undir eftirlit Embættis landlæknis. 

Ljósið var formlega stofnað árið 2006. Markmið þess frá upphafi hefur verið að sinna endurhæfingu og veita stuðning þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Þjónusta Ljóssins er þverfagleg og einstaklingsmiðuð og felst m.a. í iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, sálfræðiþjónustu, næringarráðgjöf og félagslegri virkni. Fjármögnun Ljóssins hefur hingað til byggst á styrkframlagi frá Vinnumálastofnun og heilbrigðisráðuneytinu til eins árs í senn og söfnunarfé eins og áður segir.

„Árlega sækja á annað þúsund einstaklinga sér þjónustu hjá Ljósinu. Því er mikið í húfi að tryggja rekstrargrundvöll þessarar mikilvægu þjónustu þannig að notendur og starfsfólk búi við það lágmarksöryggi sem verður að vera fyrir hendi í svona starfsemi“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á vef ráðuneytisins.

Nú stendur fyrir dyrum viðamikil úttekt á endurhæfingarþjónustu í landinu sem verður grundvöllur að stefnumótun á þessu sviði. Samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra verður Sjúkratryggingum Íslands falið að gera þjónustusamning við Ljósið til þriggja ára, frá og með árinu 2020. Þegar fyrir liggur hvernig fyrirkomulagi endurhæfingar utan sjúkrahúsa verður háttað er stefnt að því að semja um slíka þjónustu á grundvelli útboða þar sem áhersla verður lögð á að allir þjónustuveitendur sitji við sama borð.


Fleiri nýjar fréttir

9. jún. 2023 : Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig

Þegar einhver í kringum okkur greinist með krabbamein er eðlilegt að upplifa óöryggi. þótt flestir vilji leggja sitt af mörkum til að vera til staðar getur óttinn við að segja ekki réttu hlutina eða að vita ekki hvað á að segja leitt til þess að jafnvel verði minna samband við viðkomandi en áður.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?