Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 31. jan. 2020

Rannsóknir og skráning krabbameina

Krabbameinsfélagið gegnir mikilvægu hlutverki í því að afla nýrrar þekkingar á sviði forvarna gegn krabbameinum. 

Hjá Krabbameinsskránni eru skráð öll krabbamein sem greinast á Íslandi. Í þann grunn eru sótt gögn í ótal rannsóknir, innlendar sem erlendar, sem margar eru birtar í virtum vísindaritum. 

Árið 2019 voru til dæmis birtar 27 vísindagreinar í alþjóðlegum vísindaritum í samstarfi við erlenda og innlenda vísindamenn, auk þess sem niðurstöður á ritrýndum greinum voru kynntar á ráðstefnum. 

Einn doktorsnemi útskrifaðist með verkefni sem tengdist skránni á árinu, og þrír læknanemar luku BS verkefnum á vegum hennar. Einnig voru fimm íslenskir læknanemar sendir í Norræna sumarskólann í faraldsfræði krabbameina, en skólinn er á vegum Samtaka norrænna krabbameinsskráa. 

Framsetning gagna á heimasíðu félagsins hefur verið bætt og þar er hægt að nálgast tölfræði og upplýsingar um krabbamein á Íslandi á aðgengilegan og gagnvirkan hátt


Fleiri nýjar fréttir

29. sep. 2023 : Slökkti fyrst eld og keypti svo Bleiku slaufuna

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að sala Bleiku slaufunnar hófst á miðnætti í dag, 29. september. Nágranni Krabbameinsfélagsins, Bergrún Ingimarsdóttir, varð fyrst til að tryggja sér slaufu ársins. Það mátti þó litlu muna að það tækist ekki vegna elds sem hún þurfti að ráða niðurlögum að.

Lesa meira

27. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023

Gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir (by lovisa) og Unnur Eir Björnsdóttir (EIR) eru hönnunarteymið á bak við Bleiku slaufuna í ár. Það er óhætt að segja að þeim hafi tekist ætlunarverk sitt, en slaufan í ár er sú bleikasta sem við höfum séð lengi

Lesa meira

26. sep. 2023 : "Mikilvægt að segja líka frá því sem gengur vel"

Styttri legutími, skjótari bati, lægri dánartíðni og betri lifun. Ný aðferðafræði við skurðaðgerðir við lungnakrabbameini var tekin upp nærri því á einni nóttu og hefur gefið reglulega góða raun í baráttunni gegn lungnakrabbameini. Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og Viktor Ásbjörnsson læknanemi segja hér frá byltingarkenndri þróun í skurðaðgerðum við lungnakrabbameini og mikilvægi rannsókna og stuðnings við þær fyrir framþróun í málaflokkinum. 

Lesa meira

26. sep. 2023 : Takk fyrir komuna

Nýafstaðið málþing í tilefni af alþjóðadegi krabbameinsrannsókna vakti greinilega forvitni margra, því húsfyllir var í Skógarhlíðinni auk þess sem fjölmargir fylgdust með í streymi. Krabbameinsfélagið vill koma á framfæri kærum þökkum til allra sem tóku þátt.

Lesa meira
Elísa Dögg Björnsdóttir frá TVG-Zimsen, Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður markaðsmála og  fjáröflunar hjá Krabbameinsfélaginu og Magnús Ingi Guðmundsson frá IDÉ House of brands, sem sér um framlei

25. sep. 2023 : Nú er það bleikt!

Að baki átaki eins og Bleiku slaufunni búa fjölmörg handtök og undirbúningur hefst mörgum mánuðum áður en afurðin berst landsmönnum í hendur og hjörtu. Það er því alltaf stór stund þegar við fáum sjálfa slaufuna í hús og niðurtalningin fyrir upphaf átaksins hefst formlega.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?