Guðmundur Pálsson 20. nóv. 2018

Rannsókn: Hefur þú greinst með krabba­mein? Hver er þín reynsla af greiningar­ferli, með­ferð og endur­hæfingu?

Krabbameinsfélag Íslands vinnur nú að undirbúningi rannsóknar meðal þeirra sem greinst hafa með krabbamein.

Markmiðið er að finna þá þætti sem helst þarfnast úrbóta. Félagið mun nýta niðurstöðurnar á  ýmsa vegu til að vinna að úrbótum og stefnt er að því að rannsóknin verði fastur liður í starfsemi félagsins með það að markmiði að styrkja félagið í málsvarahlutverki sínu.

„Það skiptir okkur hjá Krabbameinsfélaginu miklu máli að vera í góðu sambandi við almenning og við hvetjum þá sem hafa reynslu og/eða skoðanir á því hvað megi betur fara til þess að senda okkur línu. Upplýsingar um það hvernig við getum þjónað þeim sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra betur eru okkur afar mikilvægar bæði til að bæta okkar þjónustu og hvetja til úrbóta annars staðar. Enda er eitt af okkar hlutverkum einmitt að vinna að hagsmunamálum,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Nafnlaust og ekki greinanlegt 

Til að auðvelda undirbúning rannsóknarinnar er fólki boðið að senda inn ábendingar um þá þætti sem það telur mikilvægast að spurt sé um í rannsókninni. Hægt er að senda ábendingar í gátt á vef félagsins.

Ábendingarnar eru nafnlausar og engum persónugreinanlegum upplýsingum verður safnað. Félagið áskilur sér allan rétt til að nýta ábendingarnar eins og réttast þykir.


Fleiri nýjar fréttir

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

25. mar. 2024 : Saga Sigurgeirs Líndal Ingólfssonar

Sigurgeir segir að fræðslan og kynningin í kringum Mottumars sé þýðingarmikil og hafi ýtt við honum þegar einkenni gerðu vart við sig og gert það að verkum að hann fór til læknis. Einkennin voru ekki ólík þvagfærasýkingu en það var einmitt svarið sem hann fékk fyrst þegar hann leitaði sér hjálpar.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?