Administrator 19. feb. 2016

Rafrettur - úlfur í sauðargæru?

Undanfarið hefur umræða um rafrettur verið áberandi í fjölmiðlum og mætti stundum ráða af umfjölluninni að hér sé komin hin endanlega lausn á vanda þeirra sem vilja hætta að reykja. Málið er hins vegar mun flóknara en það og nýlega hafa komið fram fullyrðingar í fjölmiðlum sem ekki standast skoðun og geta beinlínis verið villandi. 

Undirrituð, sem öll starfa við meðhöndlun sjúklinga með reykingatengd krabbamein, eða við forvarnir eða rannsóknir á þessum krabbameinum, telja rétt að leiðrétta nokkur mikilvæg atriði sem snúa að rafrettum.

Rafrettur eru lítið rannsakaðar

Það er innan við áratugur síðan rafrettur voru markaðssettar á Vesturlöndum og rannsóknir á öryggi þeirra eru afar takmarkaðar. Í upphafi voru rafrettur taldar skaðlausar en nýlegar rannsóknir benda eindregið til þess að svo sé ekki. Það að rafrettur séu minna skaðlegar en venjulegar sígarettur réttlætir ekki notkun þeirra.

Rafrettur eru ekki betri en aðrir nikótíngjafar

Í samanburðarrannsóknum hafa rafrettur ekki reynst marktækt betri en aðrir nikótíngjafar, t.d. nikotínplástur eða tyggjó, í reykleysismeðferð. Staðreyndin er sú að yfir 90% þeirra sem reyna að skipta út sígarettum fyrir rafrettur halda áfram að reykja sígarettur. Því eru engar vísbendingar um að rafrettur séu betri kostur en aðrir nikótíngjafar í reykleysismeðferð. Vökvinn, sem nikóktíninu er blandað við og eimast við bruna í rafrettum, er ekki saklaus vatnsgufa heldur inniheldur skaðleg efni eins og formaldehýð sem getur verið krabbameinsvaldandi. Fleiri skaðleg efni hafa mælst í rafrettuvökva og nýleg rannsókn hefur nú sýnt að rafrettuvökvi án nikótíns getur valdið skemmdum á erfðaefni og frumudauða. Rannsóknir á langtímaáhrifum rafretta vantar og því vitum við ekki um skaðsemi þeirra þegar til lengri tíma er litið. Það mun taka áratugi þar til ljóst verður hver langtímaáhrif rafretta á heilsu eru.

Staðan á Íslandi

Ljóst er að rafrettur hafa náð töluverðri útbreiðslu á Íslandi, ekki síst meðal unglinga. Nikótín er mjög ávanabindandi efni, jafnt í rafrettum sem öðrum nikótíngjöfum eins og sígarettum, og hefur ýmis skaðleg áhrif, t.d. á hjarta- og æðakerfi. Sú staðreynd að þeir sem byrja að nota rafrettur geta síðar ánetjast sígarettum veldur áhyggjum. Rafrettuvökvi getur verið hættulegur börnum og valdið nikótíneitrun ef börn gleypa hann. Því miður eru engar reglur eða lög um notkun rafretta hér á landi. Því er algeng sjón að sjá fólk reykja rafrettur á almenningsstöðum eins og veitingahúsum og stofnunum. Þetta er ólíðandi enda þurfa þeir sem eru nálægt þeim sem reykir að anda að sér gufunni, sem bæði inniheldur nikótín og önnur eiturefni.

Hefta verður útbreiðslu rafretta

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur varað við útbreiðslu rafretta og hvetur ríki heims til að setja hertar reglugerðir um notkun þeirra auk þess að mælast til að sömu lög gildi um rafrettur og sígarettur. Við teljum mikilvægt að slík lög verði sett hér á landi, ekki síst til að vernda rétt þeirra sem ekki kjósa að anda að sér gufum frá rafrettum. Á Íslandi hefur stefna í tóbaksforvörnum skilað góðum árangri. Með því að leyfa rafrettureykingar er hætta á að afturför verði á þeim mikilvæga árangri sem stuðlað hefur að bættri heilsu þjóðarinnar. Gerum ekki sömu mistök og þegar sígarettur voru markaðssettar. Það gæti reynst okkur dýrkeypt því rafrettur gætu reynst úlfur í sauðargæru.

  • Árni Einarsson, framkvæmdastjóri FRÆ – Fræðslu og forvarna og formaður stjórnar Krabbameinsfélags Reykjavíkur
  • Ásgerður Sverrisdóttir, krabbameinslæknir á Landspítala og varaformaður Krabbameinsfélags Reykjavíkur
  • Guðlaug B. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur
  • Gunnar Guðmundsson, prófessor og lungnalæknir á Landspítala
  • Gunnar Bjarni Ragnarsson, yfirlæknir lyflækninga krabbameina á Landspítala
  • Hans Jakob Beck, lungnalæknir og yfirlæknir lungnasviðs Reykjalundar
  • Hrönn Harðardóttir, lungnalæknir á Landspítala Jakob Jóhannsson, yfirlæknir geislameðferðar krabbameina á Landspítala og formaður stjórnar Krabbameinsfélags Íslands
  • Kristján Oddsson, yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins og forstjóri Krabbameinsfélags Íslands
  • Laufey Tryggvadóttir, klínískur prófessor við Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags Íslands
  • Lára G. Sigurðardóttir, doktor í lýðheilsuvísindum og læknir hjá Krabbameinsfélagi Íslands
  • Magnús Karl Magnússon, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands
  • Sigríður Ólína Haraldsdóttir, lungnalæknir á Landspítala
  • Sigríður Kr. Hrafnkelsdóttir, formaður Félags lýðheilsufræðinga
  • Tómas Guðbjartsson, prófessor og yfirlæknir á Landspítala
  • Þórarinn Guðnason, hjartalæknir á Landspítala
  • Örvar Gunnarsson, krabbameinslæknir á Landspítala

Greinin birtist fyrst á www.visir.is 7. janúar 2016.


Fleiri nýjar fréttir

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

25. mar. 2024 : Saga Sigurgeirs Líndal Ingólfssonar

Sigurgeir segir að fræðslan og kynningin í kringum Mottumars sé þýðingarmikil og hafi ýtt við honum þegar einkenni gerðu vart við sig og gert það að verkum að hann fór til læknis. Einkennin voru ekki ólík þvagfærasýkingu en það var einmitt svarið sem hann fékk fyrst þegar hann leitaði sér hjálpar.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?