Björn Teitsson 9. feb. 2021

Prjónagjöf í Skógarhlíð

  • Prjonagjof

Það ljómaði allt af fegurð og gleði í Skógarhlíðinni í dag þegar Dóra Harðardóttir kom færandi hendi, og það ekki í fyrsta sinn.

Dóra Harðardóttir, frá Húsavík, prjónaði 200 pör af vettlingum fyrir öll aldursbil sem hana langaði að gefa til styrktar góðu málefni. Verða vettlingarnir til sölu og rennur ágóði óskiptur til starfa og stuðnings í þágu krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra.

Þetta er í annað sinn sem Dóra kemur færandi hendi með prjónagjöf til stuðnings Krabbameinsfélaginu. Sigrún Lillie Magnúsdóttir, forstöðumaður Ráðgjafarþjónustunnar, tók við prjónagjöfinni, hæstánægð með þetta ótrúlega handverk sem ber sköpunarkrafti Dóru, ástríðu og nákvæmni, einstaklega fagurt vitni.
Kærar þakkir, Dóra. 


  • Hægt er að næla sér í vettlingapar hjá okkur í Skógarhlíðinni eða í vefverslun, meira úrval í Skógarhlíðinni.



Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?