Páll Sveinsson hannar Bleiku slaufuna 2018
Sigurvegari í samkeppni um hönnun Bleiku slaufunnar 2018 er Páll Sveinsson gullsmíðameistari. Páll er verkstæðisformaður hjá úra- og skartgripaverslun Jóns og Óskars á Laugarvegi.
Páll hefur mikla reynslu í skartgripahönnun og smíði skartgripa og hefur starfað við fagið í 23 ár. Hönnun hans á Bleiku slaufunni verður afhjúpuð í upphafi Bleiku slaufunnar, árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélags Íslands í októbermánuði sem er ár hvert tileinkaður konum og krabbameinum.
Samkeppnin fór nú fram í sjöunda sinn í samstarfi Krabbameinsfélags Íslands og Félags íslenskra gullsmiða.
„Við erum afar ánægð með slaufuna í ár og um leið og við þökkum gullsmiðunum sem sendu inn tillögur, óskum við Páli innilega til hamingju með sigurinn,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands; „Nú tekur við þróunarvinna með Félagi íslenskra gullsmiða, en samstarfið við félagið hefur verið einkar farsælt í gegnum árin og við hlökkum til að þróa það áfram.“