Opnunartími Krabbameinsfélagsins í vetur
Starfsfólk Krabbameinsfélags Íslands er að mestu komið til starfa eftir sumarleyfi og hefðbundin starfsemi er hafin.
Afgreiðsla félagsins er opin alla virka daga frá kl. 8:30-12:00 og 12:30-16:00.
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins er opin frá mánudegi til fimmtudags kl. 8:00-15:30. Móttaka Leitarstöðvar er á 2. hæð. Tekið er við tímapöntunum í hópleit að krabbameini í leghálsi og brjóstum, frá kl. 8:00-15:30 í síma 540 1919 mánudaga til fimmtudaga. Á föstudögum er tekið við tímapöntunum frá kl. 8:00-14:00. Einnig er hægt að panta tíma á netinu með því að smella hér. Nánari upplýsingar er að finna hér.
Opnunartími Ráðgjafarþjónustu er eftirfarandi:
- Opið mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9:00-16:00, fimmtudaga kl. 9:00-18:00 og föstudaga 9:00-14:00.
- Sími 800 4040, netfang: radgjof@krabb.is
Símaráðgjöf: Hægt er að hringja í síma 800 4040 á opnunartíma. Hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.
Nánari upplýsingar um Ráðgjafarþjónustuna er að finna hér .
Vefverslun
Vefverslun er opin á netinu en hægt er að sækja pantanir í afgreiðslu í Skógarhlíð.