Opið fyrir umsóknir í Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins
Markmið Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins er að efla rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.
Fjölbreytt rannsóknarverkefni eru styrkt af Vísindasjóðnum. Sérstaklega er hvatt til umsókna til klínískra rannsókna og rannsókna sem tengjast börnum og unglingum.
Óskað er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum og rennur umsóknarfrestur út á miðnætti miðvikudaginn 4. mars. Umsóknir skal senda rafrænt á visindasjodur@krabb.is og er hámarksupphæð styrks 10 milljónir króna.