Guðmundur Pálsson 17. maí 2019

Öflug vinnu­stofa um endur­hæfingu krabba­meins­greindra

Fimmtudaginn 16. maí fór fram vinnustofa um endurhæfingu þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Vinnustofan var samstarfsverkefni endurhæfingarteymis Landspítala, Heilsustofnunar í Hveragerði, Krabbameinsfélags Íslands, Krafts, Ljóssins og Reykjalundar.

Vinnustofan var framhald af samstarfsverkefni þessara aðila sem saman skipulögðu ráðstefnuna „Endurhæfing alla leið” sem fram fór í maí 2018.

Tilgangur vinnustofunnar var að tengja saman fólk alls staðar af landinu til að ræða endurhæfingu þeirra sem greinast með krabbamein og leiðir til að styrkja hana enn frekar.

Ríflega 70 þátttakendur tóku þátt í vinnustofunni sem fram fór í húsnæði Krabbameinsfélagsins og var stýrt af starfsmönnum Verkefnastofu Landspítala. Flutt voru erindi og unnið af krafti í nokkrum vinnuhópum.

Niðurstöður vinnustofunnar hafa verið dregnar saman og verður aðgerðaráætlun, byggð á þeim niðurstöðum, kynnt á næstunni.

Frett2


Fleiri nýjar fréttir

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

25. mar. 2024 : Saga Sigurgeirs Líndal Ingólfssonar

Sigurgeir segir að fræðslan og kynningin í kringum Mottumars sé þýðingarmikil og hafi ýtt við honum þegar einkenni gerðu vart við sig og gert það að verkum að hann fór til læknis. Einkennin voru ekki ólík þvagfærasýkingu en það var einmitt svarið sem hann fékk fyrst þegar hann leitaði sér hjálpar.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?