Björn Teitsson 27. nóv. 2020

Nýtt hlaðvarp: Sjúkraþjálfari hitti fólk sem hefur læknast af krabbameinum

  • Screen-Shot-2020-11-27-at-16.31.36

Haukur Guðmundsson, sjúkraþjálfari hjá Ljósinu, segir frá því að hann hitti fólk sem hefur læknast af krabbameinum, sem hafði þótt óhugsandi fyrir 10 árum síðan. Haukur hitti Björk Svarfdal í nýju hlaðvarpi Frá toppi til táar. 


Krabbameinsfélaginu er ljúft og skylt að benda á mjög áhugavert hlaðvarp sjúkraþjálfara. Í nýjasta þætti Frá toppi til táar var Haukur Guðmundsson, sjúkraþjálfari í Ljósinu, gestur ásamt Björk Svarfdal. 

Björk talar um erfiðleikana við að sætta sig við að vera með krabbamein „Ég var bara með illkynja frumubreytingar“. Haukur hvetur einstaklinga til að leita sér stuðnings sem fyrst í ferlinu. „Ég hef ekki hitt neina manneskju sem sagðist sjá eftir því að hugsa vel um sig,“ segir Haukur. 

Hægt er að nálgast þáttinn HÉR. 

 

 


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?