Nú komum við saman: Opið hús á Velunnaradaginn 10. september
Þriðjudaginn 10. september verður opið hús fyrir Velunnara Krabbameinsfélagsins, en það eru þeir sem kjósa að styðja við baráttuna gegn krabbameini með mánaðarlegu framlagi. Þannig gera þeir félaginu kleift að efla stöðugt rannsóknir, fræðslu, forvarnir, ráðgjöf og stuðning í þágu þeirra sem greinst hafa með krabbamein og aðstandenda þeirra.
Starfsfólk Krabbameinsfélagsins býður öllum Velunnurum félagsins að koma saman í húsnæði okkar að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Þar gefst tækifæri fyrir Velunnara og starfsfólk til að samgleðjast yfir góðum árangri, ræða um þau fjölmörgu verkefni sem framlög Velunnara gera möguleg, velta upp komandi áskorunum og nýjum leiðum.
Léttar veitingar verða í boði milli klukkan 16.00 og 18.00.
Við vonum innilega að þú eigir heimangengt og hlökkum til að sjá þig!
Saman náum við árangri!
Kær kveðja,
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri
og starfsfólk Krabbameinsfélagsins