Mottumarssokkar og fræðsla í Kringlunni - Kíktu við!
Starfsmenn Krabbameinsfélagsins taka vel á móti gestum og gangandi í Kringlunni föstudag og laugardag (6. og 7. mars).
Starfsmenn Krabbameinsfélagsins taka vel á móti gestum og gangandi í Kringlunni föstudag og laugardag (6. og 7. mars). Verða með Mottumarssokkana sem rokið hafa út til sölu og segja frá inntaki Mottumarsátaki í ár sem er mikilvægi hreyfingar. Kíktu við og nældu þér í par eða tvö af Mottumarssokkum í leiðinni.
Þinn stuðningur skiptir okkur öllu máli. Starfsemi Krabbameinsfélagsins byggir á söfnunarfé. Allur ágóði af sölu sokka í Mottumars rennur til vísindastarfs, rannsókna, fræðslu, forvarna og til að veita endurgjaldslausa þjónustu, stuðning og ráðgjöf með námskeiðahaldi og viðtölum við fagaðila.
Mottumarssokkarnir 2020 eru hannaðir af Gunnari Hilmarssyni hjá Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar og framleiddir af Sokkabúðinni Cobra.
Mottumarssokkarnir eru einnig til sölu á mottumars.is og í verslunum víða um land.