Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 28. feb. 2018

Mottumars 2018

  • Rakarakvartett

Ár hvert er marsmánuður tileinkaður körlum og krabbameinum í Mottumars, árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélags Íslands. 

Nú er sjónum beint að algengasta krabbameini hjá körlum, krabbameini í blöðruhálskirtli. Safnað er fyrir Karlaklefanum, vefgátt fyrir karla, þar sem finna má upplýsingar um allt sem viðkemur karlmönnum og krabbameinum. Seldir verða sokkar í rakarastofustíl til styrktar átakinu 5.-19. mars.

Fram til þessa hefur yfirvaraskegg verið allsráðandi í Mottumars. Síðustu ár hefur áhugi karlmanna á að safna yfirvaraskeggi dvínað og þátttaka í Mottukeppninni farið minnkandi. Því var tekin ákvörðun um að hvíla mottuna í ár.

„Markmiðið með breytingunni er að gera báðum kynjum kleift að sýna stuðning í verki og taka þátt í Mottumars. Sokkar í rakarastofustíl voru það sem okkur fannst passa öllum, enda augljós skírskotun í karlmennskuna og yfirvaraskeggið” segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands. 

„Við fögnum hins vegar öllum karlmönnum sem láta sér vaxa yfirvaraskegg og hvetjum þá til að senda okkur myndir af sér. Þær munum við birta, enda mottan alls ekki horfin þó hún sé ekki í forgrunni í ár.“

MM_Sokkar_Hero-C_1519834172988Karlaklefinn

Söfnunarfé Mottumars í ár verður fyrst og fremst nýtt til uppbyggingar og þróunar Karlaklefans og í baráttunni gegn krabbameini í blöðruhálskirtli.

Karlaklefinn verður upplýsingagátt sérsniðin fyrir karlmenn. Rannsóknir sýna að karlmenn yfir fimmtugu nýta sér síður en konur tilboð um sálfélagslegan stuðning í veikindum. Námskeið virðast höfða betur til þeirra en tilboð um stuðning og framsetning á efni skiptir miklu máli. 

Í Karlaklefanum verður að finna fjölbreytt efni. Fræðsluefni fyrir karla, upplýsingar um einkenni, meðferðir og afleiðingar og gagnvirkt tæki sem aðstoðar við ákvarðanartöku um skimun fyrir blöðruhálskirtilskrabbameini. Þar verða einnig upplýsingar um réttindamál, bókunarkerfi fyrir tíma hjá sérfræðingum Krabbameinsfélagsins og vettvangur fyrir samtök og hópa karla með krabbamein til að kynna sig og starfsemi sína, svo eitthvað sé nefnt.

Örráðstefna

Fimmtudaginn 15. mars verður haldin örráðstefna um krabbamein í blöðruhálskirtli í hjá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð 8. Ráðstefnan verður auglýst nánar á vef félagsins krabb.is.

Sérfræðingar til ráðgjafar

Hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður í átakinu sérstök áhersla lögð á ráðgjöf við karla. Frekari upplýsingar verða birtar á krabb.is og á facebook-síðu Ráðgjafarþjónustunnar. 

Upp-med-sokkana

Pantaðu sokka fyrir þitt lið!
Fyrirtækjum og stofnunum gefst færi á að panta sokka fyrir sitt fólk fyrirfram, en almenn sala sokkanna hefst þann 5. mars.

Mottudagurinn 16. mars

Sala Mottumarssokka hefst 5. mars og stendur til 19. mars. Sokkarnir kosta 2.000 kr. og verða seldir í netverslun Krabbameinsfélagsins og á sölustöðum um landið sem sjá má hér að neðan. Félagið hvetur alla til að klæðast sokkunum á Mottudaginn, föstudaginn 16.mars, og sýna þannig körlum táknrænan stuðning í verki.

Mottumars.is

Á heimasíðu átaksins, mottumars.is, verður að finna upplýsingar um átakið, viðburði, sölustaði og fréttir auk upplýsinga og fróðleiks af ýmsum toga, um karlmenn og krabbamein. Mottumars.is opnar með nýju efni mánudaginn 5. mars.

Sölustaðir:

  • Vefverslun Krabbameinsfélagsins, vefverslun.krabb.is
  • 10-11
  • Apótekarinn
  • Apótekið
  • Blómaval
  • Bónus 
  • Byko
  • Elko
  • Geysir
  • Heilsuhúsið
  • Iceland
  • Lumex
  • Lyf og heilsa
  • Lyfja
  • Múrbúðin
  • Nettó
  • N1
  • Olís
  • Penninn/Eymundsson
  • Pósturinn
  • Samkaup

 





Fleiri nýjar fréttir

9. jún. 2023 : Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig

Þegar einhver í kringum okkur greinist með krabbamein er eðlilegt að upplifa óöryggi. þótt flestir vilji leggja sitt af mörkum til að vera til staðar getur óttinn við að segja ekki réttu hlutina eða að vita ekki hvað á að segja leitt til þess að jafnvel verði minna samband við viðkomandi en áður.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?