Málþing um brjóstakrabbamein þriðjudaginn 15. október
Málþing um brjóstakrabbamein verður að Skógarhlíð 8 þriðjudaginn 15. október 2019 kl. 17:00-18:30 á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.
DAGSKRÁ:
- Setning: Brynja Björk Gunnarsdóttir, formaður Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna
- Myndgreining: Ásbjörn Jónsson, yfirlæknir á Landspítala
- Brjóstaskurðlækningar á Landspítala – greining og meðferð: Kristín Sigurðardóttir sérfræðingur í hjúkrun og Svanheiður Lóa Rafnsdóttir brjóstaskurðlæknir, teymisstjóri brjóstaskurðdeildar Landspítala
- Krefjandi lífsreynsla og bjargráð: Þóra Sigfríður Einarsdóttir, sálfræðingur
- Reynslusaga – stuðningsnetið: Kristín Erla Þráinsdóttir
- Reynslusaga: Guðrún Kristín Svavarsdóttir
- Umræður
- Tónlistaratriði
Fundarstjóri: Anna Sigríður Arnardóttir
Málþingið er öllum opið
- Málþinginu verður streymt beint í streymisveitu Krabbameinsfélagsins.