Lóa Björk Ólafsdóttir 22. des. 2016

Lífið og líknarmeðferð. Við getum - ég get.

  • Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur

Hvenær erum við best í stakk búin til að takast á við hið daglega líf með öllum sínum áskorunum? Sennilega eru flestir sammála um að það er auðveldara þegar okkur líður almennt nokkuð vel.  Það er eðlilegt að í mannlegri tilveru komi dagar eða tímabil þar sem okkur líður ekki sem best. Aðferðir okkar til að takast á við slæma líðan eru sennilega mismunandi.  Stundum getur samtal við góðan vin til að mynda gert gæfumuninn. Gott samtal getur veitt ákveðna líkn. Orðið „líkn“ er gamalt og rótgróið í íslenkri tungu og þýðir samkvæmt skilgreiningunni að hjálpa eða lina þjáningu.  Sem sagt, að bæta líðan sem er slæm. Líknarmeðferð er orð sem að margir hræðast og setja í samhengi við það að lífinu fari senn að ljúka.  Staðreyndin er þó sú að líknarmeðferð er gjarnan beitt samhliða annarri læknisfræðilegri meðferð. Nýlegar rannsóknir sýna fram á bætt lífsgæði og lengri lífshorfur hjá þeim einstaklingum sem fá líknarmeðferð samhliða krabbameinslyfjameðferð sem beinist að því að halda sjúkdómnum í skefjum.

Nokkrar staðreyndir um líknarmeðferð 

  • Líknarmeðferð byggir á hugmyndafræði og aðferðum sem miðast við að fyrrbyggja eða draga úr líkamlegum, sálrænum eða sálfélagslegum einkennum sem sjúkdómur leiðir af sér eða meðferð vegna hans.
  • Í líknarmeðferð er horft á einstaklinginn sem hluta af stærri heild og því er stuðningur og fræðsla mikilvægur þáttur hennar, bæði fyrir þann einstakling sem veikist og þá sem eru honum nákomnir.
  • Líknarmeðferð miðast við að hjálpa fólki að lifa eins eðlilegu og innihaldsríku lífi og hægt er miðað við aðstæður á hverjum tíma, óháð því hver staða sjúkdómsins er.
  • Líknarmeðferð á ekki eingöngu við í lokastigum veikinda, heldur er mikilvægt að veita hana snemma í veikindaferlinu, samhliða annarri meðferð.
  • Líknarmeðferð á ekki bara við þegar um krabbameinssjúkdóm ræðir, heldur alla alvarlega og ólæknandi sjúkdóma.
  • Líknarmeðferð kemur inn á mörg svið mannlegrar tilveru og krefst aðkomu og samvinnu margra fagstétta.

Af hverju líknarmeðferð ?

Mörgum reynist erfitt að taka það skref að þiggja aðkomu heilbrigðisstarfsfólks sem sérhæfir sig í líknarmeðferð. Ef til vill vegna þeirrar merkingar sem orðið líknarmeðferð hefur fyrir marga. Þetta gæti valdið því að oft þiggi sjúklingar meðferðina seint og nái ekki að nýta alla þá kosti sem hún  býður upp á. Í kjölfar framfara á sviði læknavísinda tekst oft að halda sjúkdómum mun lengur í skefjum en áður þekktist,  jafnvel þótt að sjúkdómurinn teljist ólæknandi.  Það er því viðbúið að margir standi frammi fyrir því að lifa til lengri tíma með einkennum sem sjúkdómur eða meðferð vegna hans leiðir af sér. Rétt og markviss meðhöndlun einkenna, í samvinnu við þann einstakling sem við þau glímir, skiptir gríðarlegu máli. Það skiptir máli af þeirri ástæðu að það er erfitt að eiga sér lífsgæði og von þegar slæm líðan litar tilveruna.

VIÐ GETUM  sem samfélag uppfrætt hvort annað um þá breidd sem felst í líknarmeðferð og þannig upprætt lífsseigan misskilning um að hún eigi einungis við þegar að lífslokin nálgast.

ÉG GET tekið skrefið og leitað upplýsinga um  þau úrræði sem gætu hjálpað mér og fjölskyldu minni að lifa við sem besta líðan þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm. Ég get leitað eftir upplýsingum um þá aðila sem veita líknarmeðferð innan landspítala og í heimahúsum.

Kynntu þér vefsíðu Lífsins – samtaka um líknarmeðferð á www.lsl.is.

Lóa Björk Ólafsdóttir

Höfundur starfar sem hjúkrunarfræðingur hjá Heimahlynningu Landspítala og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.

Heimildir


Fleiri nýjar fréttir

9. jún. 2023 : Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig

Þegar einhver í kringum okkur greinist með krabbamein er eðlilegt að upplifa óöryggi. þótt flestir vilji leggja sitt af mörkum til að vera til staðar getur óttinn við að segja ekki réttu hlutina eða að vita ekki hvað á að segja leitt til þess að jafnvel verði minna samband við viðkomandi en áður.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?