Ása Sigríður Þórisdóttir 3. sep. 2021

Leiðin fram á við - óskum eftir erindum um krabbameinsrannsóknir

Óskað er eftir erindum á málþing í tilefni alþjóðadags krabbameinsrannsókna. Erindin skulu vera 8-12 mínútur og æskilegt er að gefa gott yfirlit yfir sjúkdóminn eða stöðuna sem verið er að rannsaka (stöðu þekkingar) áður en farið er í niðurstöður eigin rannsókna.

Í tilefni alþjóðadags krabbameinsrannsókna bjóða Krabbameinsfélagið og Samtök um krabbameinsrannsóknir á Íslandi (SKÍ) til málþings miðvikudaginn 22. september kl. 18-20 í Veröld - húsi Vigdísar. 

Á málþinginu verður sjónum beint að íslenskum rannsóknum sem varða leiðina fram á við í baráttunni gegn krabbameinum.

Óskað er eftir erindum á málþingið. Erindin skulu vera 8-12 mínútur og æskilegt er að gefa gott yfirlit yfir sjúkdóminn eða stöðuna sem verið er að rannsaka (stöðu þekkingar) áður en farið er í niðurstöður eigin rannsókna.

Með þessu móti skiptir ekki meginmáli hvort rannsóknir eru langt eða skemur komnar, alls konar rannsóknir eru velkomnar.

Sérstaklega eru vísindamenn sem hlotið hafa styrki úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins hvattir til að skrá ágrip.

Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna gefur okkur árlegt tækifæri til að fræðast og skuldbinda okkur sem einstaklingar og samfélag til að styðja krabbameinsrannsóknir í orði og gjörðum. Dagurinn gefur okkur líka tækifæri til að gleðjast yfir þeim framförum sem hafa átt sér stað fyrir tilstilli krabbameinsrannsókna, vísindafólkinu sem starfar við þær og einstaklingana og sjóðina sem styrkja þær.


Fleiri nýjar fréttir

27. mar. 2023 : Stuðningur í verki

Viðtal við hjónin Hildi Ýr Kristinsdóttur og Helga Rúnar Bragason, þátttakanda í Skeggkeppni Mottumars og heiðursfélaga Round Table Ísland. Söfnunarsíðu Helga Rúnars í Skeggkeppni Mottumars má nálgast hér.

Lesa meira

27. mar. 2023 : Krabbameinsfélagið á ferð og flugi

Eitt af verkefnum Krabbameinsfélagsins er að sinna fræðslu og forvarnarstarfi, en vinnustöðum og fyrirtækjum stendur til boða að fá fræðsluerindi fyrir starfsmannahópa frá sérfræðingum félagsins. 

Lesa meira

25. mar. 2023 : Svona nýtist þinn stuðningur

Krabbameinsfélaginu er ekkert óviðkomandi þegar kemur að krabbameinum. Starfsemi og þjónusta félagsins er fyrir alla en í Bleiku slaufunni í október er athyglinni beint að krabbameinum hjá konum og í Mottumars að krabbameinum hjá körlum með áherslu á forvarnir og fræðslu af ýmsu tagi.

Lesa meira

25. mar. 2023 : Örþing Krabba­meins­félags­ins í tilefni Mottumars

Á Mottudeginum 31. mars stendur Krabbameinsfélagið fyrir málþingi sem ber yfirskriftina „Ekki humma fram af þér heilsuna!“ 

Lesa meira

24. mar. 2023 : Einstakrar konu minnst

Í dag er kvödd frá Hallgrímskirkju Gunnhildur Óskarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ og stofnandi samtakanna Göngum saman. Með Gunnhildi er gengin einstök kona sem skildi mikið eftir sig. Það er mikill sjónarsviptir að Gunnhildi víða í samfélaginu en mestur er auðvitað missir fjölskyldu Gunnhildar. Hjá Krabbameinsfélaginu er Gunnhildar minnst með mikilli hlýju og virðingu og aðstandendum Gunnhildar sendir félagið innilegar samúðarkveðjur.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?