Ása Sigríður Þórisdóttir 2. sep. 2022

Kynningarfundur: Vertu samstarfsaðili Bleiku slaufunnar

Vill þitt fyrirtæki vera samstarfsaðili Bleiku slaufunnar? Komdu á kynningarfund sem haldinn verður í húsnæði Krabbameinsfélagsins 7. september nk. 

Nú styttist í Bleiku slaufuna árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins í október sem tileinkað er baráttunni gegn krabbameinum hjá konum - Vill þitt fyrirtæki vera samstarfsaðili Bleiku slaufunnar? 

Kynningarfundur fyrir fyrirtæki sem vilja vera samstarfsaðili Bleiku slaufunnar og fyrirtæki sem vilja heyra meira verður haldinn miðvikudaginn 7. september kl. 11:30 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Allt starf Krabbameinsfélagsins miðar á einn eða annan hátt að því að fækka þeim sem veikjast af krabbameinum, fækka þeim sem deyja og bæta lífsgæði þeirra sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra.

Stuðningur einstaklinga og fyrirtækja skiptir miklu máli því allt starf félagsins byggir á söfnunarfé.



Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Takk sjálfboðaliðar!

Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða og Krabbameinsfélagið vill nýta tækifærið og þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum í þágu félagsins. Í tilefni dagsins fengum við nokkra sjálfboðaliða til að segja okkur frá því hvers vegna þau velja að leggja baráttunni gegn krabbameinum lið.

Lesa meira

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

2. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?