Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 6. feb. 2019

Kynningarfundur Almannaheila um heimsmarkmið SÞ

Almannaheill og verkefnastjórn stjórnvalda standa fyrir kynningarfundi um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og innleiðingu þeirra hjá félagasamtökum. 

Yfirskrift viðburðarins er Hvernig getur þitt félag lagt sitt af mörkum þegar kemur að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna?

Fundurinn verður haldinn 13. febrúar hjá Ási styrktarfélagi, Ögurhvarfi 6, kl. 16.30-18.00.

Á fundinum kynna fjögur íslensk félög hvernig þau hafa innleitt heimsmarkmiðin í sína daglegu starfsemi.

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.

Sjá hér viðburðinn á facebook.

Smelltu hér til þess að skrá þig.


Fleiri nýjar fréttir

2. okt. 2023 : Takk fyrir samveruna og stuðninginn

Það er óhætt að segja að gleði, samhugur og samstaða hafi ráðið ríkjum á opnunarviðburði Bleiku slaufunnar sem haldinn var í Þjóðleikhúsinu þann 28. september. Myndirnar sem hér fylgja segja allt um stemminguna.

Lesa meira

29. sep. 2023 : Verum bleik - fyrir okkur öll

Í dag, föstudaginn 29. september, hefst árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan. Í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að mikilvægi samstöðunnar og bleika litarins sem tákns um hana.

Lesa meira

29. sep. 2023 : Slökkti fyrst eld og keypti svo Bleiku slaufuna

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að sala Bleiku slaufunnar hófst á miðnætti í dag, 29. september. Nágranni Krabbameinsfélagsins, Bergrún Ingimarsdóttir, varð fyrst til að tryggja sér slaufu ársins. Það mátti þó litlu muna að það tækist ekki vegna elds sem hún þurfti að ráða niðurlögum að.

Lesa meira

27. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023

Gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir (by lovisa) og Unnur Eir Björnsdóttir (EIR) eru hönnunarteymið á bak við Bleiku slaufuna í ár. Það er óhætt að segja að þeim hafi tekist ætlunarverk sitt, en slaufan í ár er sú bleikasta sem við höfum séð lengi

Lesa meira

26. sep. 2023 : "Mikilvægt að segja líka frá því sem gengur vel"

Styttri legutími, skjótari bati, lægri dánartíðni og betri lifun. Ný aðferðafræði við skurðaðgerðir við lungnakrabbameini var tekin upp nærri því á einni nóttu og hefur gefið reglulega góða raun í baráttunni gegn lungnakrabbameini. Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og Viktor Ásbjörnsson læknanemi segja hér frá byltingarkenndri þróun í skurðaðgerðum við lungnakrabbameini og mikilvægi rannsókna og stuðnings við þær fyrir framþróun í málaflokkinum. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?