Guðmundur Pálsson 16. ágú. 2018

Krabbameinsfélagið með bás á Fit & Run sýningunni

Krabbameinsfélagið er með bás á Fit & Run sýningunni sem er haldin samhliða skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþonsins í Laugardalshöllinni fimmtudaginn 16. ágúst kl. 15:00-20:00 og föstudaginn 17. ágúst kl. 14:00-19:00. Það er frítt inn og allir eru velkomnir.

Okkur þætti ákaflega vænt um ef þeir sem hlaupa fyrir Krabbameinsfélagið gætu gefið sér tíma til að koma við hjá okkur og sækja borða sem á stendur „Ég hleyp af því ég get það" og hægt er að hafa framan á hlaupabolnum. Okkur langar líka að hitta þig og þakka fyrir stuðninginn. Að sjálfsögðu eru allir þeir velkomnir til okkar á básinn sem vilja kynna sér starf Krabbameinsfélagins. 

Hvatningarstöð í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardaginn 

Á sjálfan hlaupadaginn, laugardaginn 18. ágúst munum við svo að sjálfsögðu mæta niður í bæ til að hvetja okkar fólk. Við verðum með hvatningarstöð á Ægissíðu til móts við Dunhaga og mætum með kúabjöllu og lofum miklu fjöri:)

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem hlaupa til góðs fyrir félagið í Reykjavíkurmaraþoninu 18. ágúst! 

Eg-hleyp-landscape


Fleiri nýjar fréttir

1. des. 2023 : Minningarorð um Jón Þorgeir Hallgrímsson

Jón Þorgeir Hallgrímsson, læknir, fyrrverandi formaður Krabbameinsfélags Íslands og Krabbameinsfélags Reykjavíkur lést þann 21. nóvember sl., 92 ára að aldri. Jóns Þorgeirs er minnst hjá Krabbameinsfélaginu með mikilli virðingu og þakklæti. Aðstandendum vottar félagið innilega samúð. 

Lesa meira

28. nóv. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira
Ljósmynd: Thule Photos

28. nóv. 2023 : Dýrmætt að vita að maður stendur ekki einn í þessu

Flestir sem hafa upplifað það að missa einhvern náinn sér eru líklega sammála um að sorgin er erfið og þungbær. Sorg barna er sérstaklega vandmeðfarin og það getur skipt máli fyrir úrvinnslu þeirra að fá réttan stuðning frá nærsamfélaginu. Hannes missti eiginkonu sína úr krabbameini árið 2022, en þau áttu tvær dætur saman. Hann segir hér frá sorgarúrvinnslunni og helstu úrræðum sem þau feðgin hafa nýtt sér, en þar á meðal er stuðningur Krabbameinsfélagsins við börn sem missa foreldri.

Lesa meira

28. nóv. 2023 : „Mig langaði til að taka þessa byrði og bera hana sjálf“

Rakel Ósk Þórhallsdóttir, eigandi vefverslunarinnar Central Iceland, hefur undanfarin þrjú ár stutt dyggilega við Bleiku slaufuna, en í heildina telur framlag hennar 7.385.000 kr. Rakel segir hér frá drifkraftinum á bak við verkefnið, en hún hefur persónulega tengingu við málstaðinn.

Lesa meira

23. nóv. 2023 : Fulltrúar Krabbameinsfélagsins á faraldsfæti

Um þessar mundir stendur Krabbameinsfélagið fyrir átaksverkefni sem miðar að því að fjölga í þeim góða hópi Velunnara sem styðja þétt við bakið á félaginu með mánaðarlegum framlögum. Í nóvember heimsækjum við Selfoss.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?