Sóley Jónsdóttir 22. sep. 2016

Karlarnir og kúlurnar var haldið 12. september á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal

Karlarnir og kúlurnar golfmót á vegum Krabbameinsfélag Íslands, Góðra hálsa, Frískra manna, Krafts og styrktaraðila var haldið á Bakkakotsvelli 12. september þar sem körlum var boðið að taka þátt í golfdegi.  Verkefnið hófst árið 2011 og er hugsað sem endurhæfing fyrir karla sem hafa greinst með krabbamein.  Tólf karlmenn fengu tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni sér að kostnaðarlausu.

Jón Karlsson PGA golfkennari miðlaði af sinni reynslu áður en haldið var út á golfvöll. Spilað var golf með Texas scramble fyrirkomulagi og gerðu sigurvegararnir sér lítið fyrir og spiluðu á pari vallarins!

Allir þátttakendur fóru glaðir heim eftir vel heppnaðann golfdag á Bakkakotsvelli. Íslenskt Sjávarfang, Bónus, Zo-on, Þjóðleikhúsið, Íslandsbanki og AVIS styrktu mótið með vinningum.

Markmiðið er að veita körlum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa golfsveifluna i fallegu umhverfi og njóta samvista við golffélaga með svipaða reynslu.   Vanir PGA golfkennarar hafa komið og leiðbeint við golfsveifluna áður en haldið er út á völl.


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?