Sóley Jónsdóttir 14. sep. 2017

Karlarnir og kúlurnar 12. september

Þrettán ánægðir golfarar héldu heim á leið á þriðjudaginn eftir vel heppnaðan golfdag og þátttöku í Körlunum og kúlunum. Karlarnir og kúlurnar er samtarfsverkefni Krabbameinsfélags Íslands, Góðra HálsaFrískra manna og Krafts þar sem körlum sem fengið hafa krabbamein er gefið tækifæri koma saman og spila golf. 

Jón Karlsson PGA golfkennari leiðbeindi þátttakendum með golfsveifluna áður en haldið var út á golfvöll og spilaðar 9 holur (Texas Scramble). Í ár fór mótið fram á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal, þriðjudaginn 12. september.   

Sigurvegarar mótsins kölluðu sig Klængi en þeir fóru völlinn Bakkakot (9 holur) á tveimur höggum undir pari, þ.e. 33 högg.

Við þökkum styrktaraðilum kærlega fyrir stuðninginn við þetta skemmtilega verkefni en þeir voru Halldór Jónsson,  UnderArmour, Vöruhús, Íslandsbanki og Bæjarins Beztu pylsur.


Fleiri nýjar fréttir

28. nóv. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira
Ljósmynd: Thule Photos

28. nóv. 2023 : Dýrmætt að vita að maður stendur ekki einn í þessu

Flestir sem hafa upplifað það að missa einhvern náinn sér eru líklega sammála um að sorgin er erfið og þungbær. Sorg barna er sérstaklega vandmeðfarin og það getur skipt máli fyrir úrvinnslu þeirra að fá réttan stuðning frá nærsamfélaginu. Hannes missti eiginkonu sína úr krabbameini árið 2022, en þau áttu tvær dætur saman. Hann segir hér frá sorgarúrvinnslunni og helstu úrræðum sem þau feðgin hafa nýtt sér, en þar á meðal er stuðningur Krabbameinsfélagsins við börn sem missa foreldri.

Lesa meira

28. nóv. 2023 : „Mig langaði til að taka þessa byrði og bera hana sjálf“

Rakel Ósk Þórhallsdóttir, eigandi vefverslunarinnar Central Iceland, hefur undanfarin þrjú ár stutt dyggilega við Bleiku slaufuna, en í heildina telur framlag hennar 7.385.000 kr. Rakel segir hér frá drifkraftinum á bak við verkefnið, en hún hefur persónulega tengingu við málstaðinn.

Lesa meira

23. nóv. 2023 : Fulltrúar Krabbameinsfélagsins á faraldsfæti

Um þessar mundir stendur Krabbameinsfélagið fyrir átaksverkefni sem miðar að því að fjölga í þeim góða hópi Velunnara sem styðja þétt við bakið á félaginu með mánaðarlegum framlögum. Í nóvember heimsækjum við Selfoss.

Lesa meira

22. nóv. 2023 : Jóla­happ­drætti: Stuðn­ingur við marg­þætta starf­semi

Dregið verður 24. desember í jólahappdrætti Krabba­meins­félagsins.  Vinningar eru 284 talsins að verðmæti rúmar 55 milljónir króna.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?