Ása Sigríður Þórisdóttir 7. des. 2022

Jólastemmingin réði ríkjum

Óhætt er að segja að jólastemming og gleði hafi ráðið ríkjum í Skógarhlíðinni þegar rúmlega 50 konur komu á jólakransanámskeið Krabbameinsfélagsins, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Þær útbjuggu fallega jólakransa og gæddu sér á smákökum og súkkulaði með rjóma.

317672421_481180750750035_9062984798671769073_n

Námskeiðið var ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum og var þátttakendum að kostnaðarlausu.

Krabbameinsfélagið þakkar þessum frábæru konum fyrir afar ánægjulega samverustund og vonar að allar hafi haft gaman af.

IMG_2030

IMG_2093

IMG_2101

IMG_2050

IMG_2035IMG_2090IMG_2108

IMG_2052


Fleiri nýjar fréttir

20. sep. 2023 : Beint streymi: Málþing í tilefni alþjóða­dags krabba­meins­rannsókna

„Varðar mig eitthvað um krabba­meins­rann­sóknir? Já, því vísindin eru leiðin fram á við”. Þannig hljómar titill málþings sem Krabba­meins­félagið býður til í tilefni alþjóða­dags krabba­meins­rann­sókna fimmtu­daginn 21. september kl. 16:30 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8.

Lesa meira

12. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023: Komdu að leika

Krabbameinsfélagið leitar að fólki til að hjálpa okkur að búa til auglýsinguna fyrir Bleiku Slaufuna 2023. Auglýsingin er með stærra sniði í ár og þurfum við því aðstoð sem allra flestra.

Lesa meira

7. sep. 2023 : Tryggðu þér miða

Nú styttist í Bleiku slaufuna árlegt fjáröflunar- og árvekniátak Krabbameinsfélagsins, tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Tryggðu þér miða á opnunarviðburðinn sem verður í Þjóðleikhúsinu 28. september.

Lesa meira

5. sep. 2023 : „Ef ég held röddinni þá læt ég reyna á þetta“

Ljóðskáldið og rithöfundurinn Anton Helgi Jónsson stóð fyrir einstökum viðburði á Menningarnótt og safnaði um leið áheitum til styrktar Krabbameinsfélaginu. Viðburðurinn fékk heitið Ljóðamaraþon og gekk út á ljóðalestur undir berum himni í jafn langan tíma og sem nemur heimsmeti í maraþonhlaupi, eða í rúma tvo klukkutíma. Anton Helgi segir hér frá krabbameininu sem uppgötvaðist fyrir tilviljun, kirkjuskáldum og kráarskáldum og öðruvísi maraþonundirbúningi.

Lesa meira

5. sep. 2023 : Upplýsingafundur fyrir samstarfsaðila Bleiku slaufunnar

Vill þitt fyrirtæki vera samstarfsaðili Bleiku slaufunnar? Komdu á upplýsingafund sem haldinn verður í húsnæði Krabbameinsfélagsins 8. september nk. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?