Guðmundur Pálsson 28. nóv. 2017

Jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins - stuðningur við margþætta starfsemi

Dregið 24. desember í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins

Nú hafa verið sendir út miðar í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein veigamesta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameins­varnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhags­stuðningi við það.

Í jólahappdrættinu fá konur senda happdrættismiða. Vinningar eru 279 talsins að verðmæti um 47,5 milljónir króna. Aðalvinningurinn, að verðmæti 4.990.000 krónur, er Volkswagen Golf GTE Premium frá bílaumboðinu Heklu. Þrír vinningar eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. 120 vinningar eru í formi úttektar hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. Einnig eru 155 vinningar í formi úttektar hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 24. desember.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru nú sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka eða netbanka og eiga þannig möguleika á glæsilegum vinningum. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8. Þeir sem vilja borga miðana með greiðslukorti geta hringt í síma 540 1900, en þar eru einnig veittar nánari upplýsingar um happdrættið. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa og tilkynna þeim um vinninga.

Rúmlega 1.500 krabbamein eru að meðaltali greind hér á landi á ári. Hjá konum er brjósta­-krabbamein algengast og hjá körlum er það krabbamein í blöðruhálskirtli. Í öðru sæti er lungna­krabbamein hjá báðum kynjum og ristilkrabbamein í því þriðja. Nú eru á lífi um 14.000 einstaklingar sem hafa fengið krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins. 

Happdraetti-vinningar


Fleiri nýjar fréttir

9. jún. 2023 : Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig

Þegar einhver í kringum okkur greinist með krabbamein er eðlilegt að upplifa óöryggi. þótt flestir vilji leggja sitt af mörkum til að vera til staðar getur óttinn við að segja ekki réttu hlutina eða að vita ekki hvað á að segja leitt til þess að jafnvel verði minna samband við viðkomandi en áður.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?