Guðmundur Pálsson 27. des. 2019

Jóla­happ­drætti Krabba­meins­félagsins: Vinnings­tölurnar komnar í loftið – takk fyrir stuðninginn!

Dregið hefur verið Í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Happdrættið hefur verið ein veigamesta tekjulind félagsins um áratugaskeið og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun.

Krabbameinsfélagið þakkar landsmönnum veittan stuðning. Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu félagsins að Skógarhlíð 8, sími 540 1900. Byrjað verður að greiða út vinninga þann 9. janúar næstkomandi.

Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein veigamesta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. 

Fræðsla um krabbamein og krabbameinsvarnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhagsstuðningi við það.

Ár hvert greinast að meðaltali um 1.600 manns með krabbamein hér á landi. Lífslíkur krabbameinssjúklinga hafa aukist mjög mikið og er það þakkað forvörnum, betri skilningi á orsökum krabbameins, greiningu á fyrri stigum og markvissri meðferð. Nú eru um 15.000 einstaklingar á lífi sem hafa fengið krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.

Jolahappdraetti-vinningstolur-2019


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?