Guðmundur Pálsson 19. nóv. 2019

Jóla­happ­drætti Krabba­meins­félagsins: Stuðningur við marg­þætta starf­semi

Nú hafa verið sendir út miðar í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Vinningar eru 288 talsins að verðmæti rúmar 49 milljónum króna.

Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein veigamesta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameins­varnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir, stuðningur við krabbameinssjúklinga og rannsóknir eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhags­stuðningi við það.

Í jólahappdrættinu fá konur senda happdrættismiða. Vinningar eru 288 talsins að verðmæti rúmar 49 milljónum króna:

  • Aðalvinningurinn, að verðmæti 5.720.000 krónur, er Mazda CX-30 Cosmo frá bílaumboðinu Brimborg. 
  • Þrír vinningar eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. 
  • 120 vinningar eru í formi úttektar hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. 
  • Einnig eru 164 vinningar í formi úttektar hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. 

Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 24. desember.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka/netbanka og eiga jafnframt möguleika á glæsilegum vinningum. 

Jolahappdraetti2019-midinn

Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8 og í vefverslun félagsins. Upplýsingar eru gefnar í síma 540 1917. Einnig má hafa samband ef óskað er eftir að borga með greiðslukorti. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa heimsendra miða og tilkynna þeim um vinninga. Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með framkvæmd og rekstri happdrættis Krabbameinsfélagsins.

Ár hvert greinast að meðaltali um 1.600 manns með krabbamein hér á landi. Lífslíkur krabba­meins­sjúklinga hafa aukist mjög mikið og er það þakkað forvörnum, betri skilningi á orsökum krabbameins, greiningu á fyrri stigum og markvissri meðferð. Nú eru um 15.000 einstaklingar á lífi sem hafa fengið krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.

Nóvember 2019


Fleiri nýjar fréttir

27. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023

Gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir (by lovisa) og Unnur Eir Björnsdóttir (EIR) eru hönnunarteymið á bak við Bleiku slaufuna í ár. Það er óhætt að segja að þeim hafi tekist ætlunarverk sitt, en slaufan í ár er sú bleikasta sem við höfum séð lengi

Lesa meira

26. sep. 2023 : "Mikilvægt að segja líka frá því sem gengur vel"

Styttri legutími, skjótari bati, lægri dánartíðni og betri lifun. Ný aðferðafræði við skurðaðgerðir við lungnakrabbameini var tekin upp nærri því á einni nóttu og hefur gefið reglulega góða raun í baráttunni gegn lungnakrabbameini. Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og Viktor Ásbjörnsson læknanemi segja hér frá byltingarkenndri þróun í skurðaðgerðum við lungnakrabbameini og mikilvægi rannsókna og stuðnings við þær fyrir framþróun í málaflokkinum. 

Lesa meira

26. sep. 2023 : Takk fyrir komuna

Nýafstaðið málþing í tilefni af alþjóðadegi krabbameinsrannsókna vakti greinilega forvitni margra, því húsfyllir var í Skógarhlíðinni auk þess sem fjölmargir fylgdust með í streymi. Krabbameinsfélagið vill koma á framfæri kærum þökkum til allra sem tóku þátt.

Lesa meira
Elísa Dögg Björnsdóttir frá TVG-Zimsen, Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður markaðsmála og  fjáröflunar hjá Krabbameinsfélaginu og Magnús Ingi Guðmundsson frá IDÉ House of brands, sem sér um framlei

25. sep. 2023 : Nú er það bleikt!

Að baki átaki eins og Bleiku slaufunni búa fjölmörg handtök og undirbúningur hefst mörgum mánuðum áður en afurðin berst landsmönnum í hendur og hjörtu. Það er því alltaf stór stund þegar við fáum sjálfa slaufuna í hús og niðurtalningin fyrir upphaf átaksins hefst formlega.

Lesa meira

12. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023: Komdu að leika

Krabbameinsfélagið leitar að fólki til að hjálpa okkur að búa til auglýsinguna fyrir Bleiku Slaufuna 2023. Auglýsingin er með stærra sniði í ár og þurfum við því aðstoð sem allra flestra.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?