Sóley Jónsdóttir 22. ágú. 2017

Haustsala aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins 31. ágúst-7. september

  • Krabbameinsfélagið

Árleg haustsala aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins fer fram dagana 31. ágúst - 7. september

Árleg haustsala aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins stendur yfir 31. ágúst - 7. september 2017. Í ár selja aðildarfélögin penna og bílaþvottapoka með merki félagsins.

Allur ágóði rennur til aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands en það eru svæðisbundin krabbameinsfélög og stuðningshópar sem stofnaðir hafa verið til að sinna fræðslu og þjónustu við þá sem hafa fengið krabbamein.

Félögin takast á við veigamikil verkefni í heimabyggð sinni, einkum á sviði fræðslu og stuðnings við sjúklinga og fjölskyldna þeirra. Stuðningshóparnir hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra og hefur það haft ómetanlega þýðingu. Sölunni er ætlað að styðja við þessa starfsþætti.

Takið vel á móti sölufólki okkar!


Fleiri nýjar fréttir

27. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023

Gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir (by lovisa) og Unnur Eir Björnsdóttir (EIR) eru hönnunarteymið á bak við Bleiku slaufuna í ár. Það er óhætt að segja að þeim hafi tekist ætlunarverk sitt, en slaufan í ár er sú bleikasta sem við höfum séð lengi

Lesa meira

26. sep. 2023 : "Mikilvægt að segja líka frá því sem gengur vel"

Styttri legutími, skjótari bati, lægri dánartíðni og betri lifun. Ný aðferðafræði við skurðaðgerðir við lungnakrabbameini var tekin upp nærri því á einni nóttu og hefur gefið reglulega góða raun í baráttunni gegn lungnakrabbameini. Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og Viktor Ásbjörnsson læknanemi segja hér frá byltingarkenndri þróun í skurðaðgerðum við lungnakrabbameini og mikilvægi rannsókna og stuðnings við þær fyrir framþróun í málaflokkinum. 

Lesa meira

26. sep. 2023 : Takk fyrir komuna

Nýafstaðið málþing í tilefni af alþjóðadegi krabbameinsrannsókna vakti greinilega forvitni margra, því húsfyllir var í Skógarhlíðinni auk þess sem fjölmargir fylgdust með í streymi. Krabbameinsfélagið vill koma á framfæri kærum þökkum til allra sem tóku þátt.

Lesa meira
Elísa Dögg Björnsdóttir frá TVG-Zimsen, Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður markaðsmála og  fjáröflunar hjá Krabbameinsfélaginu og Magnús Ingi Guðmundsson frá IDÉ House of brands, sem sér um framlei

25. sep. 2023 : Nú er það bleikt!

Að baki átaki eins og Bleiku slaufunni búa fjölmörg handtök og undirbúningur hefst mörgum mánuðum áður en afurðin berst landsmönnum í hendur og hjörtu. Það er því alltaf stór stund þegar við fáum sjálfa slaufuna í hús og niðurtalningin fyrir upphaf átaksins hefst formlega.

Lesa meira

12. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023: Komdu að leika

Krabbameinsfélagið leitar að fólki til að hjálpa okkur að búa til auglýsinguna fyrir Bleiku Slaufuna 2023. Auglýsingin er með stærra sniði í ár og þurfum við því aðstoð sem allra flestra.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?