Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 5. jún. 2019

Gengur rúmlega 3.000 km með hjólbörur í kringum landið

„Ef ég geng með hjólbörurnar eins og ég sé að hella úr þeim, þá fæ ég ekki verki í axlirnar,“ segir Hugi Garðarsson, 21 árs, sem ætlar að ganga hringinn í kringum landið til styrktar Krabbameinsfélaginu í sumar. 

Hugi gerir ráð fyrir að vera um 100 daga á leiðinni, heimsækja 70 sveitarfélög og ganga 3.000-3.500 kílómetra. Hann gengur með allt sitt dót í hjólbörum sem hann hefur búið hliðarspegli og þverstöng til að auðvelda gönguna á þjóðvegum landsins.

Hugi starfaði um tveggja ára skeið sem landvörður á Þingvöllum og síðustu þrjá mánuði í Skaftafelli. Hann hefur áður gengið hringinn í kringum landið, en fjárfesti í hjólbörum á Akureyri og gekk með þær til Reykjavíkur.

„Það er miklu auðveldara að labba með hjólbörur ef maður lyftir þeim upp og allur þunginn hvílir á dekkinu. Með hjólbörum næ ég léttilega að ganga allt að 35 kílómetra á dag, en án þeirra eru það aðeins 20-25 kílómetrar.“

Spilar í 50 kirkjum

Í hjólbörunum geymir Hugi allt sem hann þarf til ferðalagsins, tjald, svefnoka, matarbirgðir, bækur og gítar sem hann spilar á daglega. Á leiðinni er markmiðið einnig að spila á gítarinn í 50 kirkjum.

Vinsælt myndefni hjá ferðamönn

Hugi segist oft vekja athygli með hjólbörurnar og alltaf sé einhver sem hægi á sér til að taka mynd, þótt hann hvetji fólk ekki til að hægja mikið á sér og skapa þannig hættu í umferðinni á þjóðvegum landsins.

Söfnunarsími 908-1001 fyrir 1.000 kr.

Hugi gekk af stað frá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð í dag klukkan 14 til minningar um ömmu sína sem lést úr krabbameini árið 2014: „Lát hennar var okkur fjölskyldunni afar þungbært, sérstaklega afa mínum. Ég ætla að fara hringinn réttsælis, heimsækja um 70 bæjarfélög og hlakka til að kynnast landinu á göngunni um leið og ég legg góðum málstað lið,“ segir Hugi að lokum og hvetur alla til að hringja í söfnunarsímann því flestir þekki einhvern sem hefur kljást við krabbamein.

Hugi verður einn á ferð og hægt er að fylgjast með ferðum hans á facebook síðu göngunnar.

Starfsfólk Krabbameinsfélagsins fylgdi Huga úr hlaði og hvatt hann áfram.


Fleiri nýjar fréttir

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?