Ása Sigríður Þórisdóttir 27. okt. 2022

Fimmaurabrandarafjelagið styrkir Krabbameinsfélagið

Fimmaurabrandarafjelagið hefur í gegnum árin styrkt góð málefni og engin undantekning varð á því þegar fjórða bók fjelagsins kom út, Fimmaurabrandarar 4. Nú fékk Krabbameinsfélagið kr. 100.000- frá fjelaginu og er upphæðin eyrnarmerkt átakinu gegn brjóstakrabbameini.

Krabbameinsfélagið þakkar Fimmaurabrandarafjelaginu kæralega fyrir stuðninginn.

Kápan á bókinni var að sjálfsögðu bleik af þessu tilefni. 

Hér á eftir verður gripið niður í bókina, sem auðvitað allir ættu að eiga:

  • Af hverju gat húsflugan ekki svarað spurningunum? Þetta voru allt bjölluspurningar.
  • „Það er tvennt sem ég er algjör snillingur í að búa til. Það eru kjötbollur og kleinur.“„Og hvort er þetta?“
  • Fólk verður leiðara og leiðara eftir því sem það les fleiri leiðara.
  • Karíus og Baktus eru oft á milli tannanna á fólki.

 


Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Takk sjálfboðaliðar!

Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða og Krabbameinsfélagið vill nýta tækifærið og þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum í þágu félagsins. Í tilefni dagsins fengum við nokkra sjálfboðaliða til að segja okkur frá því hvers vegna þau velja að leggja baráttunni gegn krabbameinum lið.

Lesa meira

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

2. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?