Björn Teitsson 27. nóv. 2020

Færri nota ljósabekki en áður

  • Ljosabekkir-2020-frett-e1606400402244

Árleg könnun um notkun ljósabekkja á Íslandi sýnir að færri nota ljósabekki í ár en árið 2019. Hlutfall notenda ljósabekkja er hæst í aldursflokknum 18-24 ára, eða um 21%. Notkun ljósabekkja fylgir aukin áhætta á húðkrabbameini.

Hlutfall fullorðinna sem höfðu notað ljósabekki einu sinni eða oftar á síðustu 12 mánuðum er nú komið niður í um 6%, miðað við 11% í fyrra. Hlutfallið hefur ekki verið lægra frá því að kannanir hófust árið 2004. Hlutfall þeirra sem höfðu notað ljósabekki var hæst hjá aldursbilinu 18 – 24 ára, eða 21%.

Þetta sýndu nýlegar niðurstöður árlegrar könnunar á notkun ljósabekkja á Íslandi en könnunin er framkvæmd af Gallup fyrir hönd samstarfshóps Geislavarna, Embættis Landlæknis, húðlækna og Krabbameinsfélagsins.

Í tilkynningu frá Geislavörnum segir að frá árinu 2004, þegar mælingar hófust, hefur dregið verulega úr notkun ljósabekkja. Upphafsár mælinga var verst, að því leyti að um 30% fullorðinna höfðu þá notað ljósabekki í einhverjum mæli síðustu 12 mánuði. Þar segir enn fremur: 

„Niðurstöðurnar sýndu m.a. einnig að um 12% svarenda höfðu brunnið a.m.k. einu sinni af völdum ljósabekkja eða sólar á síðastliðnum 12 mánuðum, sem er það lægsta frá árinu 2013, þegar þessi spurning var fyrst lögð fyrir. Í fyrra var sama hlutfall 19% en var 27% árið 2013.

Í skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem kom út 2017 segir að notkun ljósabekkja til sólbaða í fegrunarskyni undanfarna áratugi hafi valdið aukinni tíðni húðkrabbameina. Einnig hefur aldur þeirra sem fá slík krabbamein í fyrsta sinn lækkað. Notkun ljósabekkja er talin valda meira en 10 þúsund tilfellum af sortuæxlum árlega og meira en 450 þúsund tilfellum af öðrum húðkrabbameinum í Bandaríkjunum, Evrópu og Ástralíu samanlagt. Skaðleg áhrif ljósabekkja eru þannig vel þekkt og því er nauðsynlegt að takmarka notkun þeirra sem mest en 18 ára aldurstakmark á notkun ljósabekkja tók gildi á Íslandi í janúar 2011.“

Krabbameinsfélagið tekur undir yfirlýsingu Geislavarna og fagnar þessum jákvæðu niðurstöðum um minnkandi notkun ljósabekkja. Notkun þeirra fylgir aukin áhætta á húðkrabbameini. 


Fleiri nýjar fréttir

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

25. maí 2023 : Bjóðum Brakkasamtökin velkomin í hópinn

Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins var staðfest ákvörðun stjórnar um aðild Brakkasamtakanna að Krabbameinsfélagi Íslands. Krabbameinsfélagið fagnar ákvörðun aðalfundarins og býður Brakkasamtökin velkomin í hópinn.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?