Björn Teitsson 18. maí 2021

Evrópudagur krabbameinshjúkrunarfræðinga 18. maí

  • EONS
Krabbameinshjúkrunarfræðingar halda upp á Evrópudag þann 18. maí og er tilgangur dagsins að vekja athygli á störfum krabbameinshjúkrunarfræðinga og mikilvægi sérhæfðrar þekkingar. 

Þriðjudaginn 18. maí 2021 halda Samtök evrópskra krabbameinshjúkrunarfræðinga (EONS) upp á dag krabbameinshjúkrunarfræðinga í Evrópu. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á störfum krabbameinshjúkrunarfræðinga, vinna að viðurkenningu á framlagi þeirra og mikilvægi sérhæfðrar þekkingar og færni á sviði krabbameinshjúkrunar. Í ár verður sjónum beint að hlutverki krabbameinshjúkrunarfræðinga í forvörnum krabbameina. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Evrópsku krabbameinssamtökin hafa tekið saman leiðir sem taldar eru geta dregið úr líkum á því að greinast með krabbamein. Fagdeildarmeðlimir eru hvattir til að vekja athygli á leiðum til að minnka líkur á krabbameinum. 

Frekari upplýsingar eru á:
www.cancernurse.eu/ECND2021

https://www.krabb.is/fraedsla-forvarnir/heilsan-min-mitt-lif/12-leidir/

Fylgist með
#ECND21Go4Prevention


Fagdeild krabbameinshjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er eitt af aðildarfélögum EONS.


Krabbameinsfélagið sendir krabbameinshjúkrunarfræðingum um allt land og allan heim innilegar þakkarkveðjur fyrir ómetanlegt framlag í þágu krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra.


Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Takk sjálfboðaliðar!

Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða og Krabbameinsfélagið vill nýta tækifærið og þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum í þágu félagsins. Í tilefni dagsins fengum við nokkra sjálfboðaliða til að segja okkur frá því hvers vegna þau velja að leggja baráttunni gegn krabbameinum lið.

Lesa meira

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?