Evrópudagur krabbameinshjúkrunarfræðinga 18.maí
-
-
Styrkhafar Vísindasjóðs 2018 ásamt formanni stjórnar Vísindasjóðs, Sigríði Gunnarsdóttur, til hægri.
Þann 18. maí 2018 halda samtök Evrópskra krabbameinshjúkrunarfræðinga (EONS) í annað sinn upp á dag krabbameinshjúkrunarfræðinga í Evrópu.
Dagur evrópskra krabbameinshjúkrunarfræðinga er haldinn árlega. Markmiðið dagsins er að vekja athygli á störfum evrópskra krabbameinshjúkrunarfræðinga og auka skilning á mikilvægi sérhæfðra starfa krabbameinshjúkrunarfræðinga til hagsbóta fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra.
Í ár leggur EONS áherslu á mikilvægi menntunar og sérhæfingar á sviði krabbameinshjúkrunar. Haustið 2017 hófst diplómanám í krabbameinshjúkrun við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, en námið byggir m.a. á námskrá EONS. Um 20 hjúkrunarfræðingar hófu nám og mun námið eflaust gera þá betur í stakk búna til að veita krabbameinssjúklingum á Íslandi enn betri þjónustu og færa þeim þannig bætt lífsgæði.
Á komandi dögum mun margt áhugavert vera á döfinni á vegum EONS og hvetur fagdeildin félgsmenn til að fylgjast með á:
- europeancancernursingday.com og
- facebook.com/cancernurseEU
- eða taki þátt í að tísta um dag Evrópska krabbameinshjúkrunarfræðinga á #ECND2018