Er ekki langt síðan þú fórst í vísindaferð? Nú er komið að því!
Krabbameinsfélagið býður heilbrigðisstarfsfólki í vísindaferð, fimmtudaginn 12. janúar kl. 16:30 – 18:00 í húsi félagsins í Skógarhlíð 8.
Við kynnum starfsemi félagsins; ráðgjöf, rannsóknarstarf, fræðslu og forvarnir og Vísindasjóð félagsins.
Léttar veitingar verða í boði og umfram allt gott tækifæri til að styrkja tengslin, spjalla um það sem fólki liggur á hjarta um krabbamein og hvernig hægt er að ná enn betri árangri með góðri samvinnu.
- Skráning er hér.
Við hlökkum til að sjá þig.